Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Page 13

Eimreiðin - 01.09.1913, Page 13
165 þó reyndar fleiri, sem rétt væri að leggja fyrir skáldmælta mann- inn í skrifstofunni. Spurningar mínar til hans eru þessar: Hvers- vegna komast Islendingar áfram betur en flestir aðrir vesturfarar? Er það fyrir þá sök, að ættjörð þeirra er gæðalaus? — Engin landgæði eru til á íslandi, segir Baldvin. — Hefir mannkynssagan sýnt það og sannað, að vínber fáist af þyrnum og þistlum? Eru nú eplin tekin til að falla og fljúga langar leiðir frá eikunum? Veit ég það að vísu, að landið okkar er grýtt, og hörð veðráttan. En hvern, sem drottinn elskar, agar hann, segir ritningin. Hún er orðheppin, sú gamla, þótt hún sé runnin undan tungurótum mann- anna. Og ættjörðin okkar fylgir sömu reglunni sem Jahve — hún er hörð við börn sín og ströng í uppeldisreglunum. Og þess- vegna kemst í þau kjarkur og manndáð og framsækni. — Eg er ekki spámaður. En þó veit ég það, að niðjar Baldvins ritstjóra komast ekki til jafns við hann í framkvæmdum eða leikni, þó að þeim sé betur búið í hendur en honum, »frá almennu sjónarmiði«. Pað, sem gera mun gæfumuninn, er þetta: að í »góða landinu« venjast börnin ekki við þá hörðu hönd viturrar fóstru, sem stælir manngildið og herðir það til afreka. — Ritstjóri Heimskringlu hefir sagt í blaði sínu, að hann ætti ekkert að þakka ættjörðinni. En það er fjarstæða. Hann á henni að þakka alla þá hæfileika, sem komið hafa honum til manns. Og má það vera undarleg náttúra í einu barni, sem ekki verður brugðið um vitskort, að það skuli dilla sér hverja stund og alla daga við það, að bíta hana móður sína í geirvörtuna og skamma hana fyrir megurð í ofanálag, þegar hún er búin að selja því (barninu) þeirri mjólk, sem nauðsyn barnsins krefur. það land, sem leggur Kanada upp í hendurnar bezta land- nema — duglegasta og greindasta — það land getur ekki verið úrþvætti allra landa. Af ávöxtunum þekkjast trén. Vont tré getur ekki borið góðan ávöxt, segir meistarinn. Og hann sagði satt. Nú hefi ég fært fram ýmsar ástæður fyrir því, að landið sé ekki kríusker, og ómaklegt þess að leggjast í eyði. Hefi ég fært fram röksemdir frá frjóefnasviði landsins og boðið byrginn »slétt- unni ómælilegu, endalausu«, »kjarnamoldinri kviku«. Og hins vegar hefi ég sýnt fram á þá góðu raun, sem Fjallkonubörnin gefa erlendis, þegar þau ganga fram á Hofmannaflöt lífsins og takast á um keppikefli og þreyta hlaupskeið um hnossgæti líkama og sálar. — En fleira verður að mæla en lofsyrði um hátterni

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.