Eimreiðin - 01.09.1913, Blaðsíða 78
230
(26. okt. 1912), þar sem hann sýnir fram á, hvílík gróðrarstía höfuðstaður Dan-
merkur hefir verið fyrir vísindalíf og bókmentir vorar á næstliðnum öldum.
V G.
UM PLÖNTUGRÓÐUR Á VINLANDI (»Philological Aspects of the Plants of
Wineland the Good«) hefir kennari við Cornell-háskólann A Le Roy Andrews ritað
mjög lærða ritgerð í grasafræðistímaritið »Rhodora« (Vol. 15, nr. 170; febr. 1913),
þar sem hann ræðst á skoðanir þær, sem prófessor Fernald hafði áður sett fram í
sama riti (febr. 1910) og sem getið var um í EIMR. XVI, 155—156. Kemst
herra Andrews þar að sömu niðurstöðu og haldið var frani í Eimr., að próf. Fer-
nald hafi algerlega rangt fyrir sér að því er snerti skýringu hans á »vínber« og
»sjálfsáið hveiti«, en vel geti verið, að »mösurr« hafi verið hvítbjörk eða einhvers-
konar birkitegund. V. G,
DIE ISLANDFREUNDE (Islandsvinirnir) heitir félag, sem nýlega hefur stofn-
að verið á fýzkalandi með því markmiði, að gefa ráð og veita upplýsingar viðvíkj-
andi ferðum og rannsóknum á Islandi. Ætlar félagið meðal annars að gefa út tímarit,
sem komi út á hverjum ársfjórðungi og þar sem getið sé alha nýrra bóka og rit-
gerða, er út komi um Island, með útdráttum úr þeim, ritdómum o. s. frv. Árstil-
lsg félagsmanna er 6 M.
I bráðabirgðastjórn félagsins eru: Prófessor Paul Hermann (Torgau), kaup-
maður Heinrich Erkes (Köln), dr. Hans Spethmann (Berlín) og heilbrigðisráð dr.
Otto Cahnheim (Dresden), en heiðursforsetar eru þeir prófessórarnir dr. Porv. Thor•
oddsen (Khöfn), dr. Gering (Kiel), dr. Mogh (Leipzig) og hirðráð J. C. Poestion
(Wien). — Skrifstofa félagsins er hjá dr. Cahnheim, Gellertstr. 5, Dresden.
V. G.
HIÐ ISLENZKA FRÆÐAFÉLAG I KHÖFN hélt 1. ársfund sinn 6. maí þ. á.
Skýrði formaður félagsins þar frá gjörðum þess á umliðnu ári, og að því hefði verið
vel tekið. Stjórn félagsins var endurkosin. I ár ætlar félagið að gefa út 2. h. at
t>Píslarsógu séra Jóns Magm'issonar>i., t>Bréf Páls Melsteðs til Jóns Sigurðssonar< og
1. h. af t>Jarðabók Arna Magnússonar og Páls Vídalínsi. V. G.
»JEDOCH«, sögu séra Jónasar Jónassonar, hefir herra Heinrich Erkes þýtt á
þýzku, og er sú þýðing prentuð í »Rhein Zeitung« 22. — 24. apríl 1913.
V. G.
Leiðréttingar og prentvillur.
Prentvillupúkinn hefúr verið óvenjulega og óþægilega nærgöngull við EIMR. í
tveimur síðustu heftum hennar, þó sumt sé mislestri að kenna á óskýrum handritum
eða þá misritun í þeim. í^essar villur viljum vér biðja lesendur vora sérstaklega
að afsaka og leiðrétta:
Bls. ió14: »miðja 18. öld« les: miðja iq. öld. — Bls. 23^: pela í einu
þrisvar á dag« les: 1 pela í einu þrisvar á dag (6 sinnum á sólarhring). — Bls.
1039: »enni-borði« les: enni-barði. — Bls. 1046: »sinutíðir« les: sinutíð. — Bls.
1156 °S 12: »Kosta átti eg kirnum« les: Kasta átti eg kirnum. — Bls. ii612:
»töfrablæju örbirgðarinnarc les: tótrablœju örbirgðarinnar. — 135^ (og í fyrirsögn-
inni): »Jakob ég-lausi« les: Júbal ég-lausi. — Bls. 14918: »Kristur spurði þó sjálf-
ur« les: Kristi varð þó sjálfum svarafátt, er Imnn var sþurður.
í auglýsingunni um afslátt á EIMR. frá upphafi stendur á kápunni í 1. hefti:
»fyrir einar 33 kr. (í Ameríku $ 13,20)«, en á að vera: fyrir einar 32 kr. (í Ame-
ríku 4' 12,86) — eins og líka stendur (rétt) í auglýsingunni á kápunni í 2.
heftinu.