Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 22

Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 22
174 stjörnurnar í ómælisgeimnum. Og nú, á dauðastund minni, fær mér það engrar hrygðar, að ég hefi ekki kynst öðrum hnöttum. Nei, en það fellur mér sárar, að svo margar miljónir ungra kvenna skuli hafa lifað, án þess ég fengi að líta þær augum, segja eitt einasta orð við þær, rétta að þeim lítilfjörlegt blóm, vermast af einu brosi frá þeim. Hér hef ég fimm perlur á talnabandinu mínu, og að vísu eru þær eins og duftkorn gagnvart óendanleikanum, eins og sjálfur ég. En þó tákna þessar fimm perlur í mínum augum fimm gyðj- ur, sem hafa varpað ljósi á vegferð mína, — og enn þá, á sjálfri dauðastund minni, lýsa þær mér og bera vitni um dásemdir sköpunarinnar«. II Bræðurnir fjórir höfðu hlustað með miklum fjálgleik á ræðu elzta bróður síns, og ósjálfrátt höfðu þeir spent greipar um talnabönd sín. Gamli maðurinn bað nú um vatnssopa, og er hann hafði drukkið, strauk hann svitann af enni sér, þagði um hríð, til að hvíla sig, og tók svo loks aftur til máls: »Hvers- vegna hef ég getað afborið mikinn skort og margar þjáningar? Hversvegna ollu engin sár mér örvæntingar? Hversvegna finn ég enn þann dag í dag einhvern ljúfan unaðsblæ leika um ellimóða andlitið á mér? Er það ekki af því, að konur hafa verið mér gjafmildar? Hvernig breyttist ég úr óstýrilátum og illa innrættum strák í góðlyndan og iðinn dreng? Spyrjið litlu stúlkuna garð- yrkjumannsins, sem lék sér við mig á hverjum degi í aldingarði foreldra minna. Hún var oft í rauðum kjól, og hún hafði bjart hár, sem svörtu flauelsbandi var bundið um. Ef lækur varð á leið okkar, þá var ég vanur að bera hana yfir, svo hún skyldi ekki vökna. Einu sinni rakst þó annar fóturinn á henni niður í vatnið, og þá fór ég sjálfur úr sokknum og neyddi hana til að hafa sokkaskifti. Enn þá stendur mér litli fóturinn hennar fyrir hugskotssjónum. Eg hélt honum milli handanna og þerraði hann með húfunni minni. Lífið hefir veitt mér nægtanóg af slíkum smá- atvikum. Og þó kvarta margir yfir að þraut sé að lifa! Spyrjið mig ekki hvernig stóð á því, að í æsku virtist mér vera eilíft sumar og allir vera góðir og fagrir, og að árnar og fjöllin segðu gamlar sögur á hverri nóttu? En látið mig heldur segja ykkur frá því, að einusinni hertóku víkingar mig og seldu í þræl- dóm, að ég varð að vinna í námum með fjötur á fótum, og að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.