Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Side 25

Eimreiðin - 01.09.1913, Side 25
177 kné og bað, að guði mætti þóknast að láta dagsbirtuna doka ofurlítið við, svo að litla stúlkan viltist ekki. En einkum er mér þó nóttin sú minnisstæð. Ég lá með höf- uðið á þúfu og poka ofan á mér vegna næturkuldans; alt í kringum mig lágu sauðirnir, sneru höfðunum áveðurs og jórtruðu og hrutu. Hundurinn hafði lagt trýnið á öxlina á mér, og ég strauk honum og kallaði hann Lúkrezíu, af því hárið var svo mjúkt á honum. Éetta var heiðrík nótt og alstirndur himinn, og ég starði á stjörnurnar og vissi, að þær voru allar saman ungar stúlkur, sem sátu þarna og brostu við jörðunni. ^Éú ert ekki neitt« sagði ég hvað eftir annað við sjálfan mig — »þetta er ekki til neins fyrir þig«. En þegar ég var sofnaður, breyttust sauðirnir í hermannaflokk, sem kallaði mig konung sinn, og við öxl mér hvíldi stúlka í bláum kjól og með rauða húfu, og hún trúði mér fyrir því, að hún ætlaði aldrei að skilja við mig. Sjálfur var ég í gullbúnum skarlatsklæðum og réð fyrir mörgum ríkjum og lönd- um, sem ég hafði unnið með vopnum, aðeins til þess að leggja það fyrir fætur hennar. Seinna þóttu mér allar stjörnurnar nálg- ast, og voru þá í hvítum kjólum, og þær söfnuðust umhverfis okkur og voru brúðmeyjar okkar, af því hinn voldugi konungur ætlaði að hefja hina ungu Lúkrezíu til þeirrar tignar, að verða drotningin hans. Ég vaknaði við það, að hún kysti mig, og sá þá, að það var hundurinn, sem var að sleikja mig í framan. Sólin var komin upp og óð í stórum, blóðrauðum skýjum. Sauðir mínir voru á beit, og ég stökk á fætur, og í fyrsta sinn fagnaði ég hinum ný- runna degi, »Bráðum kemur hún« hugsaði ég, og ég tók hundinn á bak mér og fór á sprett með hann, frávita af gleði. Og þarna gengur maður og starir út yfir víðáttuna allan þann dag, og næsta daginn með. Ég vissi, að hún mundi ekki koma, og þó var það dásamlegt, að vera að vonast eftir henni. En oft tók ég mig tii og lagði dálítil merki hér og þar, sem hún skyldi rekast á, ef ég dæi, áður en hún kæmi; og þegar ég var á gangi, hvíslaði ég nafn hennar svo undurlágt, að enginn sauð- anna gæti heyrt það. En ég man líka eftir því, að ég skar merki í trékubba, sem hún ein átti að geta skilið, og trékubbunum fleygði ég í læk og grátbændi hann um að flytja þá beina leið til hennar. Ég þarf víst ekki að taka það fram, að hún kom aldrei aftur.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.