Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Side 28

Eimreiðin - 01.09.1913, Side 28
i8o kyrrum, reiðubúnar að leggja á flótta. En þá féll mér allur ketill í eld, ég æpti eins og ég ætti lífið að leysa: »Góðu stúlkur! óttist ekki, ég skal ekki gera ykkur neitt, en komið og auðsýnið mér miskun, því ég er hálfdauður úr kulda.« Rétt sem snöggvast flaug mér í hug að biðja þær að binda fyrir augun; en þá hefðu þær ekki getað séð, hvar þær áttu að leggja bátnum að. Pegar þær könnuðust við mig, og sáu, að þetta var presturinn þeirra, óx ótti þeirra um allan helming, og héldu nú, að þær sæju vofu; en ég leitaðist við að fullvissa þær um, að prestar væru skap- aðir eins og allir aðrir menn, og að þær mættu því ómögulega fara svo, að hjálpa mér ekki. Loksins réðu þær af að taka mig í bátinn, en létu þó, sem þær horfðu í gaupnir sér, meðan á því stóð. Eg hnipraði mig saman í skutnum, og þær reru af stað. Eg sneri baki við þeim, því ég hugsaði það mundi, ef til vill, hneyksla þær minna. En nú var farið að kvölda, og þegar þær sáu hvað ég skalf af kulda, fóru þær að hvískra eitthvað. Loksins lagði önnur þeirra árina upp í bátinn og spurði: »Ekki vænti ég megi bjóða yður pils að láni, herra prestur? Og eins og þá var ástatt fyrir mér, tók ég þakksamlega hvaða spjör sem verið hefði, og flýtti mér að fara í pilsið ungu stúlkunnar. Pá spurði hin mig, hvort hún mætti ekki lána mér kápuna sína, og tók ég feginshendi við henni og fór í hana. Pegar við komum að landi, báru enn ein vandræðin að höndum, nefnilega hvernig ætti að veita mér frekari hjálp. Ég var hálfdauður úr kulda og vosbúð og þurfti skjótrar aðhlynningar, en klaustrið var eina mannabýlið á eynni. Nunnunum kom nú ásamt um, að fara með mig í kvenklæðum heirn í klaustrið, svo ekki bæri neitt á neinu, og ég tók öllu með þökkum, því ég sár- þarfnaðist að fá eitthvað heitt að drekka og að fá að hvílast. Kæru bræður, önnur þessara ungu stúlkna lét mér til reiðu klefa sinn og rúm sitt; og nóttin sú varð mér minnisstæð. Ég þykist vita með vissu, að þið hafið sofið í kvenmanns sæng, en hafið þið nokkurntíma sofið í nunnurúmi? Ég get ekki lýst þeirri tilfinningu, að leggjast til hvíldar í þessum fannhvítu rekkjóðum og yljast af þessum ábreiðum, sem nóttina áður höfðu sveipast um unga mey. Éað var eins og allur líkami minn yrði smám- saman gagntekinn af einhverjum óútmálanlegum ljúfleik, og ég lagði aftur augun og dró andann djúpt, af því mér fanst and- rúmsloftið vera angandi og hugðnæmt. Ég mundi ógjörla, hvernig

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.