Eimreiðin - 01.09.1913, Page 58
210
Það er gott að vera listamaður og vita það ekki, eða gleyma
því. Hverjir hafa ort fyrir börnin hinar minnisstæðu þulur og
meinlausu barnaljóð um ungviðið, krummann, hvolpinn, ketlinginn,
lambið, folaldið og kálfinn? Hver hinar fögru fugla- og dýra- og
grasavísur, eða um sumar og vetur, sólarljóð, sjófara- og ferða-
vísur? Hverjir hafa með þeim kveðskap lagt fyrsta grundvöllinn
hjá börnunum undir listir og líf, fegurð og frama, mannúð og
meinleysi? Ekki mörg stórskáldin, ekki hinir fornu sögumenn,
engir stórspekingar. Pað hafa gert mæður og feður, eða fóstrur,
afar og ömmur; en þó fyrst og fremst hin einföldu góðu alþýðu-
skáld, er voru mannvinir, dýravinir, barnavinir og guðsvinir, menn,
sem voru, en vissu ekki, að þeir voru líka skdld. — eins og mælt
er um málárann Correggió, að hann hafi mælt í æsku, er honum
var gert skiljanlegt, hvab list vœri. Pá sá hann, að hann var
fæddur meistari og mælti: Eg er líka mdlari!
Guð gefi oss marga þesskonar listamenn!
þingvellir við Öxará.
Peir eru œruverðasti staður, sem vér eigum til,
JÓN SIGURÐSSON.
I.
Fáir íslendingar munu koma svo í fyrsta sinn á f’ingvelli við Öx-
ará, að eigi dáist þeir að náttúrufegurðinni og í hug þeirra vakni end-
urminningar um helztu viðburði, sem tengdir eru við sögu þessa merkis-
staðar.
Þetta tvent: söguviðburðirnir og náttúrufegurðin, hlýtur að snerta
tilfinningar allra, sem staddir eru á þessum fornhelga stað. Þar má
segja, að saman sé komið flest það, sem einkennilegast og fegurst er
í íslenzkri náttúru, og þar hafa einnig gerst margir merkustu viðburð-
irnir í sögu íslendinga.
Um náttúrurfa á þingvöllum er þetta að segja í stuttu máli: Í’ar
er eldbrunnið hraun með hrikalegum gjám og gjótum, skógar og grös-
ugir vellir, silfurtær á, tignarlegur foss og fiskisælt stöðuvatn. Umhverfis
þessa fögru og einkennilegu mynd liggur fjallahringurinn sem traustur
varnarmúr, hár og hrikalegur; gjörir hann »Vellina« enn þá tilkomu-
meiri og tignarlegri. Enda kvað skáldið svo um f’ingvelli: »Gat ei
nema guð og eldur — gjört svo dýrðlegt furðuverk.« Er sem nátt-