Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Page 59

Eimreiðin - 01.09.1913, Page 59
21 I úruöflin hafi hvert í kapp við annað unnið að því, að gera Þingvelli svo dýrðlega og aðlaðandi, að ekki gæti hjá því farið, að sá staður framar öllum öðrum á landi hér heillaði þjóðina með fegurð sinni. Það var trú fornmanna, að hollvættir landsins byggju í hverjum hól og hverju fjalli. Mun það eflaust hafa aukið helgi þingstaðarins, í þeirra augum, að hollvættirnar sátu í fjöllunum umhverfis og mynd- uðu hvirfing um hann og héldu yfir honum verndarhendi. Þetta mun Geitskór hafa séð, er hann valdi hann að þingstað. Náttúrufegurð og sögufrægð Þingvalla gæti ekki verið höfð í jafn- litlum metum hjá neinni menningarþjóð, eins og raun er á, nema ís- lendingum einum. Sé það talinn vottur um ræktarsemi við fortíðina, að tína saman og varðveita frá glötun forngripi vmsa, og þá harla ómerka suma hverja, ætti það ekki síður að teljast ræktarsemi, að varðveita frægasta og fegursta sögustaðinn, sem til er á íslandi — Þingvelli við Öxará. En þó að Þingvellir hafi verið og séu enn í mestu vanhirðu og niðurntðslu, eru þeir samt íslendingum einhver hjartfólgnasti bletturinn, sem til er á landinu, enda væri harla einkennilegt,, ef svo væri ekki; en slíkt kemur þó ailajafa ekki f ljós í verkinu. Ymislegt má þó til telja, sem lýsir hlýju hugarþeli manna til sögustaðarins forna. Auk þess sem íslendingar sjálfir ferðast til Þingvalla til að skoða þá sem sögustað, telja þeir það skyldu sína, að fylgja útlendingum þangað, sem heimsækja landið — og því fremur sem þeir eru tignari — til þess að sýna þeim náttúrufegurðina, og þá sjálfsagt um leið, að skýra þeim frá atgjörvi og frægð þeirra manna, er þar háðu alþingi til forna. í annan stað lýsir sér tilfinning þjóðarinnar á þessum stað, og ástríki á honum, í hinum svonefndu Þingvallafundum, sem haldnir hafa verið stöku sinnum eftir að alþingi var lagt þar niður. Þegar vanda- mál ber að höndum. eða fram úr einhveijum landsmálum þarf að ráða viturlega, sendir þjóðin fulltrúa sína til Þingvalla til skrafs og ráðagerða. Með fundahöldum þessum finst þjóðinni enn í dag hún eiga sér örugt og órjúfanlegt vígi, þar sem Þingvöllur er. Henni þykir eins og ráðsnillingnum Snorra goða að Helgafelli, að þau ráð, sem ráðin séu á fornhelgum stað, muni sízt að engu verða, enda hefur það alloft ræzt. Þá láta skáldin ekki á sér standa, að halda uppi hróðri Þingvalla í ljóðum sínum. Þau skoða hann enn í dag sem shelgan völl« og »hjarta« íslands, og velja honum mörg önnur vegleg heiti, enda á hann slíkt fyllilega skilið. En það fer oft svo, að verst er með það farið, sem maður ann mest, og sannast það fyllilega á Þingvöllum. Einmitt á meðan þeir eru hlaðnir lofköstum í ljóðum skáldanna, eru þeir niðurníddir í verkinu. Landið gengur úr sér og eyðilegst ár eftir ár. Hraunhólarnir á Þingvöllum, og umhverfis þá, voru áður huldir þykku jarðlagi, og klæddir gróðurmiklum skógi; þeir standa nú berir og naktir; jafnvel mosanum, sem á þeim vex, er ekki hlíft; honum er flett af grjótinu og kastað í eldinn, þegar ekki er annað fyrir hendi. Skógarkjarrið, sem enn er eftir hér og hvar um hraunið, eyðilegst óðfluga og hverf-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.