Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 65

Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 65
217 minnast á, hveiju það hefði verið að kenna, og færa ástæður fyrir, að svo þyrfti ekki að fara framvegis. Ummæli höf. um friðunina virðast og helzt til óljós og stundum of víðtæk. Ætti t. d. að friða allan silunginn í í’ingvallavatni, svo að þar mætti ekki veiða eina bröndu ? Minna mætti nú gagn gera, og þó ná tilganginum. Þar sem Þingvellir voru við stofnun alþingis (930) einmitt gerðir að fullkominni þjóðareign, sameiginlegri eign allra landsmanna eða þing- heyjenda, þá gæti auðvitað legið nærri, að eins væri með þá farið á 1000 ára afmæli alþingis 1930, og að landssjóður legði fram féð, sem til þess þyrfti, að gera þá að þjóðgarði. Frágangssök væri þetta ekki, þó landssjóður hafi í mörg horn að líta. En örðug mundi þó sú leið- in reynast. Nær mundum vér því telja hitt, og bæði færari leið og fegurri, að allir íslendingar, beggja megin hafsins, legðust á eitt um að safna og gefa fé til þessa fyrirtækis — til þess að friða og prýða þennan sannnefnda hjartasta’b þjóðarinnar. Fegurra mark fyrir Vestur- íslendinga, til að sýna ræktarþel sitt til ættjarðar sinnar, er naumast hægt að hugsa sér. Vér gætum meira að segja vel hugsað oss, að þeir vildu helzt leggja fram alt féð einir, svo að þeir ættu að sínu að hverfa, þegar þeir kæmu að heimsækja ísland1 — ættu í raun og veru stærsta ítakið í fegursta, frægasta og helgasta blettinum á öllu landinu! En það mætti heimaþjóðin ekki láta viðgangast, að Vestur-íslend- ingar fengju að vera hér einir um hituna. Meira en að leyfa þeim að vera með, mætti hún ekki. En það ætti hún líka að gera. Því þar sem í’ingvellir eru sameiginlegt minningaland allra þeirra, sem ís- lenzka tungu tala, þá fer bezt á, að þeir allir taki höndum saman um að prýða það og vemda. y y Ritsj á. GUÐM. FINNBOGASON: HUGUR OG HEIMUR. Hannesar Árnasonar erindi. Rvík 1912. Þótt undarlegt megi virðast um jafn bókhneigða þjóð og vér ís- lendingar í rauninni erum, þá hefur heimspekin aldrei átt eiginlega upp á pallborðið hjá okkur. í sumum öðrum greinum höfum við átt og eigum vísindamenn, er eigi hafa staðið á baki vísindamönnum stórþjóðanna. Svo virðist sem einkum sagnafróðleikur sé frá alda öðli einkenni þjóðar vorrar, að gáfnalagi okkar sé þannig háttað, að vér séum hneigðari til að tína saman viðburðina, sem orðið hafa, og skrá- 1 Sbr. gróðrarreit og trjáplöntun amerískra Dana á Jótlandsheiðum. 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.