Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 69

Eimreiðin - 01.09.1913, Qupperneq 69
221 (Viborg) f. Vébj'órg, því svo heitir bærinn í fornritunum (af »vé« og >;lijörgt, flt. af »bjarg«). — Viðkunnanlegra teldum vér og á íslands- kortinu að hafa Faxajlói heldur en »Faxafjörður«, sem komist hefur inn á kortin úr Landnámu, en enginn íslendingur brúkar nú lengur. Er það eitt dæmi þess, hve gjarnt mönnum er til að éta upp hver eftir öðrum hugsunarlaust. Með uppdrætti hvers lands fylgir mynd af fána þess, og með ís- landsuppdrættinum mynd af fálkamerkinu. Sérstök kort eru og yfir landslag, og litagreining hin bezta til skilningsauka. y Q TÍMARIT KAUPFÉLAGA OG SAMVINNUFÉLAGA. VI. ÁR. Ritstjóri Sigurhur Jónsson. Akureyri 1912. Tímarit þetta er mjög myndarlega úr garði gert og heldur fast á stefnu sinni. Langmest af efni þess er ritað af ritstjóranum sjálfum, og einkennilega vel ritað og hugsað af óskólagengnum manni Mikið rúm taka auðvitað margskonar skýrslur frá kaupfélögum og samvinnufélögum, en annars eru þar helztu ritgerðimar þessar: »Endur- minningar« (um upptök Kaupfél. í’ing.) eftir Jakob Hálfdánarson og ritstjórann, »í’jóðleg fæða« (um skyrið okkar Og hollustu þess) eftir Pétur Gauta, sumpart þýtt og sumpart framritað; »Félagsskipun, sam- vinna og samhjálp* (fyrirlestur) eftir ritstjórann,. og svo þýðing á tveim- ur dönskum fyrirlestrum, og eru þeir allir góðir og mikið af þeim að læra. y q INGIBJÖRG ÓLAFSSON: NOKKUR ORÐ UM SIÐFERÐIS- ÁSTANDIÐ Á ÍSLANDI. Rvík 1912. (Verð 25 au.) »Siðferðiskröfur manna hér á landi hafa aldrei verið háar. ís- lendingasögurnar sýna, að forfeður okkar hafa ekki allskostar verið til fyrirmyndar í þeim efnum.« Með þessum orðum byijar þessi ritlingur, og rekur því næst sögu þjóðarinnar, öld fyrir öld, til þess að sýna, hve áfátt siðferðisástandinu hafi verið á hverjum tíma. Og að lokum er harla ófögur lýsing á siðferði íslendinga nú á dögum, einkum í höfuðstað landsins, og er þar óþægilega komið við illkynjuð kaun í þjóðlífi voru. Því hefir verið haldið fram, að ritlingur þessi væri öfgakendur, og því verður heldur ekki neitað, að svo sé. 1 honum er óneitanlega málað með svörtustu litunum, sem höf. hefir fundið, með ljótustu dæm- unum, sem til eru í fortíð vorri og nútíð. En þetta er ekkert tiltöku- mál í ritlingi, sem vill berjast á móti þjóðlöstum. Slíks gætir jafnan nokkuð í allri baráttu, að menn grípa helzt til þeirra dæmanna, sem sterkasta hafa litina, og því eru líklegust til að hafa mest áhrif á les- andann eða áheyrandann. Auðvitað verður þá oftast of frekt í farið og meira gert úr löstunum, en rétt er. Og svo er og í þessum ritlingi. Dæmin, sem tilfærð eru, eru víst flest eða öll sönn, en þeim oft gefið meira alment gildi, en rétt er. Mörg af þeim eru undantekning- ar, sem fyrir koma hjá öllum þjóðum á öllum öldum, og verður ald- rei við því spornað, að slíkt geti fyrir komið, af þvf »mennirnir eru nú ekki eins góðir, eins og þeir ættu að vera«. En þótt ýkjur séu með í spilinu og víða of langt farið, á höf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.