Eimreiðin - 01.05.1920, Page 12
140
FORFEÐUR MANNKYNSINS
[EIMREIÐINf
gengust
manna,
o. fl.
hér í álfunni1); voru þau aðalveiðidýr þessara
auk þess veiddu þeir villihesta, vísunda, viliigelti
Engin vissa er enn fengin um ætterni hreinaveiðaranna.
Sumir halda, að þeir séu sprotnir upp af kynblöndun
milli þjóðflokkanna tveggja, er taldir voru hér á und-
an, en getgáta þessi er lítt sennileg, því að menn þessir
voru þeim svo ólíkir í mörgu.
Hreinaveiðar-
arnir virðast
hverfa úr sög-
unni skömmu
áður en jökul-
tíminn endar, og
er það óráðin
gáta, hvað af
þeim hafi orðið.
Olíklegt þykir,
að svo vel gefin
þjóð hafi gefisft
upp í baráttu
lífsins, þegar
vora tók i enda-
lok jökultímans.
Sumir halda, a&
þeir hafi elt
hreinahjarðirn-
ar, er fluttust
norður og aust-
ur á bóginn, eftir því sem hlýnaði og jöklarnir drógust
lengra norður, er jökultíminn var að enda; imynda þeir
sér, að Lapplendingar eða máske sumar Eskimóaþjóðirn-
ar í norðlægustu löndum Asíu, séu afkomendur þeirra.
4. mynd
Þverskurður af heilabúum:
1) af apa (chimpansen),
2) af apamanni (Pithecanthropus),
3) af Neanderdalsmanni,
4) af nútiðar-Englendingi.
1) Á öndverdum jökultímanum voru algengustu spendýrin hér i álfu: Fílarr
vatnahestar, nashyrningar, hellnabirnir, hýenur o. íl. Voru dýr þcssi komin til
Evrópu á pliocentimanum áður en jökulveturinn byrjaði. Um miðbik jökul-
tímans voru mammútsdýr algengust, ullhærðir nashyrningar og moskussauðir.
Er leið að lokum jökultimans, voru hreindýrin algengust. Bein þessara dýra
linnast víða með niannaleifunum og eru til hjálpar við ákvarðanir á aldri þeirrav