Eimreiðin - 01.05.1920, Blaðsíða 55
EIMREIÐIN]
BRJÓSTMYND AF JÓNI EIRÍKSSYNI
183
af því, er hann væri að fást við, ef hann kæmi heim til
þeirra. Fám dögum síðar heimsótti Ferrini þá Gottskálk
og son hans; fór Bertel þá með hann inn í smá-herbergi
eitt og sýndi honum þar brjóstlikneski úr leiri, sem hann
var að vinna að þá dagana.
En hvort sem menn nú vilja fallast á það, að Bertel
Thorvaldsen hafi gert brjóstlíkneskið af Jóni Eiríkssyni
áður en Jón dó, eða ekki, má þó telja víst, að hann hafi
gert það áður en hann lagði af stað til Ítalíu, 30. ágúst
1796. Nú kynni einhverjum að þykja nokkur orð í lýs-
ingunni á brjóstlíkneskinu í ævisögu Jóns Eiríkssonar,
bls. 99—100 (sjá hér að framan), nefnilega þessi: »hvað
andlitið snertir yfrið líkt því hér að ofan nefnda andlits-
málverkk, benda til þess, að líkneskið hafi verið gert
•eftir málverkinu, þ. e. myndkringlu Óiafs prófessors Olav-
sens, sem var gerð 1794, og gæti það þá slaðist timans
vegna, ef menn jafnframt vildu álíta, að Bertel hafi gert
líkneskið ekki fyr en Ólafur gerði þessa mynd og ekki
síðar en hann lagði af stað í suðurförina. En hér að
framan var hinu gagnstæða haldið fram, því, að Ólafur
hafi gert sína mynd eftir líkneski Bertels. Ólafur hafði
aðallega lagt stund á húsagerðarlist á listaháskólanum,
en ekki málaralist né myndasmíði. Hann mun þó hafa
verið leikinn teiknari og hefir sennilega fengist við að
gera fleiri myndir en þessa. Hann var aldavinur Jóns
Eiríkssonar, en miklu yngri (26 árum) og hafði þannig
góð skilyrði til að geta gert mynd af honum. En það, að
mynd hans og líkneski Bertels eru lík, bendir engu síður
á, að hún sé gerð eftir því en að það sje gert eftir henni.
En þegar um það er að ræða, hvort Bertel hafi 1794
mótað líkneski sitt eftir mynd Ólafs eða Ólafur teiknað
mynd sina þá eftir líkneski Bertels, getur varla verið efa-
mál, að hið síðarnefnda hljóti að hafa átt sér stað og að
hið fyrnefnda sé næsta ólíklegt, og einkum er þess er
gætt jafnframt, að Bertel steypti líkneski sitt úr hinu ís-
lenska efni, sem Jón »sjálfur hafði látið koma frá íslandi«,
eins og tekið var fram áður. Það mun mega telja það
öldungis víst, að Ólafur hafi gert vangamynd sina eftir