Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1920, Blaðsíða 33

Eimreiðin - 01.05.1920, Blaðsíða 33
EIMREIÐIN] í BISKAYAFLÓA 161 um með útréttar hendur og sá i bleikt andlilið. Allir horfðu á eftir líkinu og sló miklum óhug á flesta og töldu þeir raunir sínar. En Ofeigur varð byrstur við og skipaði þeim að horfa ekki á líkið. Lögðu þeir svo Finn- lendinginn þar, sem kyndarinn hafði legið. Á þriðja sólarhring voru þeir orðnir vatnslausir og höfðu þó haldið sparlega á; kvöldust þeir ákaflega af þorsta upp frá því, en alt af höfðu þeir eitthvað til að seðja hungur sitt. Afskaplegt hvassviðri gerði á þá á fjórða degi, og reif nær alt seglið frá ránni að ofan. Þeir höfðu drifakkeri í bátnum og skutu því út til að halda honum upp í vind- inn. Var það þó afskaplega hættulegt, meðan báturinn var að snúast. En akkerið reyndist of létt. Bundu þeir þá við það blikkfötu og eftir það fór báturinn vel í sjó. Nú var seglið tekið ofan og leitað að nálum, seglgarni og seglhönskum og fanst það alt. Ætluðu þeir Ófeigur og Carlson, hinn sænski, að gera að seglinu, en hendur þeirra voru þá svo þrútnar af bleytu og kulda, að þeir komust ekki í seglhanskana og treystust þeir engan veg að sauma seglið saman, en tóku það ráð að þuma það saman hér og þar, eftir bestu getu, og að þvi búnu var það undið upp. Þá var farið að lægja og hékk það uppi úr því. Öðru hverju voru skipverjar að barma sér og voru vonlausir um landtöku. Hallmæltu þeir Ófeigi og töldu að hann færi villur vegar. Fyrsti vélstjóri var aldraður mað- ur, líklega vel fimtugur. Hann sat jafnan hjá Ófeigi og var æðrulaus, þangað til fjórða daginn. Pá segir hann við Ófeig: »Nú er skipstjóri kominn í land og símar heim til sín og spyrst þá ekki til mín. Hvar heldurðu að þetta lendi, stýrimaður? Náum við nokkurn tíma landi? Erum við ekki alt af að sigla til hafs? Nú eru að dofna á mér fæturnir og eg afber þetta ekki lengi«. Ófeigur gaf góðar vonir um að alt færi vel og sagði þeim þá í fyrsta sinni, að hann væri á leið til Spánar. Nú hefði þeir siglt á fjórða dag og mundu komast þangað í fyrsla lagi þá um kvöldið, ella um nótlina, og tóku 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.