Eimreiðin - 01.05.1920, Blaðsíða 49
EIMREIÐIN]
177
Brjóstlikneski af Jóni Eiríkssyni
eftir Bertel Thorvaldsen
í ævisögu Jóns Eiríkssonar,1 2) bls. 99—100, niðurlagi
meginmálsins er þessi frásögn: »Loksins er þess hér að
minnast, að sá nafnfrægi bílætasmiður, Riddari Bertel
Thorvaldsen, hefir mótað (módellerað) brjóstbíiæti af Kon-
ferenzráði Erichsen, en óvíst er, nær þetta er skeð. Bílæti
þetta er gjört af gyps eðr krítjarðartegund, er Erichsen
sjálfr hafði látið koma frá íslandi í þeim tilgangi, að út-
breiða brúkun hennar, í staðinn fyrir þesskonar jörð, er
Danskir kaupa frá útlöndum. Bílæti þetta var aðdáanliga
falligt, i fuilri stærð og að nokkruleiti með rómverskri
yfirhöfn (CostumeJ; hvað andlitið snertir yfrið líkt þvi hér
að ofan nefnda andlitsmálverki,*) og að þeirra manna
sögn, er séð hafa Erichsen, hans lifandi eptirmynd. Herra
Etazráð, Leyndarskjalavörðr og Riddari G. Thorkelín,
prýddi leingi þarmeð, einsog með öðrum fágætum kunst-
arverkum, sitt ágæta bókasafn, þángaðtil hann árið 1825
skeinkti það Amtmanni B. Thorsteinsson, sem eitt annars
margfaldliga ítrekað merki upp á sína velvild og vináttu.
En á ferðinni híngað til lands vildi sú óheppni til, að sú
kista, hvarí bíiætið var niðrlagt, hafði, annaðhvört af
ógætiligri meðferð, eða af skipsins hræringu, liðið svo
stóran skaða, að það, nær hún var opnuð, fannst brotið,
og ei annað algjörlega heilt, en sjálf andlitismyndin,
hvörja egandinn geymir í skylduga þakklætis endurminn-
ing, bæði við þann er gaf, sem og við þann sjaldgæfa
höfðingja, hvörs æfisaga hérmeð endast«.
1) Æfisaga Jóns Eiríkssonar, konferenzráðs, Deputéraðs í enu kgl. Rentu-
kammeri, Bókavarðar á því stóra kgl. Bókasafni, o. s. ír. o. s. fr. Samantekin
af Handlæknir Sveini Pálssyni eftir tilhlutun Amtmanns Bjarna Thorsíeinssonary
og af þeim síðarstnefnda yfirséð og löguð, með andlitsmynd og rithandar sýnis-
horni útgefin á kostnað ens íslenska Bókmentafélags. Kaupmannahöfn, 1828.
2) Hér er átt við litla vangamynd i minnismerkismynd, sem Olafur Olavesen,
prófessor i Kongsbergi, dró upp og gaf út árið 1794 (sbr. 2. mynd). Sú mynd er
sennilega gerð eftir þessu brjóstlíkneski eða eftirmynd af því; sbr. þó það er
siðar segir um aðrar myndir af J. E. //ö/.
12