Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1920, Blaðsíða 18

Eimreiðin - 01.05.1920, Blaðsíða 18
146 HNÍFAKAUP [EIMKEIBIN Eg gleymdi hræðslunni og efanum, og gat ekki stilt mig um að reka upp fagnaðaróp, sem endaði í löngu já-i. Nú var eg viss. En því var strákurinn svona vitlaus? Hann um það. Ekki átti eg að sjá fyrir því. Hjartað skalf í brjósti mér af löngun og eftirvænting, þegar eg losaði bandið úr miðhneslunni og smokkaði því ofan í vestisvasann og vöðlaði því utan um hnífinn, sem eg huldi í lúku mér í seinasta skifti. »Jæja, karlinn! Svo þú ætlar þá loksins að hafa kaupin! Sko þann stutta!« Hann var þó aldrei að hæðast að mér? Mér fanst skop- hreimur og snertur af ögrun i málrómnum. En mér var sama. Bráðum var skemtunin mín megin. Við réttum fram hendur og skiftum. Eg fann eitthvað sívalt snerta lófa minn og leit upp stórum augum. í hendinni hélt eg ekki á neinum útmetn- um kaupstaðarhníf, heldur á sívalningi, liðlega þriggja þumlunga löngum, á gildleik við kvenhrifuskaft, sagað i sundur að endilöngu, nema svolítill partur neðst. þar var beljarstór og margfægð látúnsbóla fest í endann. Kol- ryðgað og skörðótt hnífsblað var fest með litlum nagla, sem átti vist að heita þolinmóður, i fremri endann, og lék það laust í sagarfarinu. Engin fjöður og ekkert hald. Blaðskömmin fór í gegnum sjálft sig hring eftir hring og snerist eins og skopparakringla. Eg var svo hryggur og reiður, að eg kom engu orði upp fyrst í stað. Leifi veltist um af hlátri. »Þetta er ómark! Það eru svik!« stundi eg loksins upp og krepti hnefana. »Nei, hróið mitt! Þetta eru lögleg hnífakaup. Þú ætl- aðir að hafa af mér, en hafðir af sjálfum þér. Eg sagði þér aldrei, að þú fengir fallega hnifinn minn, en eg sagð- ist eiga hann enn þá, heilan og óskemdan. — Littu bara á!« sagði hann með skerandi hæðni, og tók upp hníf úr vinstri vestisvasanum, sem eg þóttist þekkja að mundi vera hinn sami og sá, er eg hafði mesta löngun á að eignast, og freistaði mín að láta sterka og góða hnífinn minn úr eigu minni. Hann var langtum glæsilegri en eg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.