Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1920, Page 40

Eimreiðin - 01.05.1920, Page 40
168 1 BISKAYAFLÓA IEIMREIÐIN til Hafnar sama morgun, sem »Sterling« átti að fara, en skipið var þá enn ókomið frá Svíþjóð, en kom hálfum mánuði síðar, og þar tók hann sér fari til íslands og kom hingað um mitt sumar 1917. Síðar réðst hann 2. stýrimaður á »Borg« og var í förum um Norðursjó með- an siglingar voru þar sem hættulegastar, en hlektist þó ekki á í þeim ferðum. Þegar þetta er ritað, er hann orð- inn skipstjóri á vélskipinu »Harry«. Reykjavík, apríl, 1920. Gjábakkahellir. Hér á landi eru, svo sem menn vita og eðlilegt er í slíku hraunalandi, margir hellar. Þeir eru þó ekki allir hraunhellar og mætti skifta hellum hér í tvo ílokka, hraunhella og mó- bergshella. Hinir fyrri hafa orðið til er hraunin mynduðust, hinir síðari myndast af sjó (brimi) eða við vatnsföll, og enn margir þeirra af mannahöndum. Eru hinir siðastnefndu einkum i Árnessýslu og Rangárvallasýslu, notaðir fyrrum og flestir enn til að geyma í fé og hey á vetrum. Þeir eru mjög merkir fyrir menningarsögu vora og Iifnaðarháttu, en ekki skal rætt frekar um þá í þessu greinarkorni. Mætti einnig flokka alla hella hér í tvo flokka eftir því, hvorir eru manngerðir og hvorir ekki; einnig má hafa þá tvískiftingu á móbergshellunum einum, því að hraunhellarnir eru engir manngerðir. Margir hraun- Matthias Pórðarson.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.