Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1920, Síða 43

Eimreiðin - 01.05.1920, Síða 43
EIMREIÐINJ GJÁBAKKAHELLIR 171 af honum til vinstri handar og upp á við. Þegar við höfð- um farið um V3 km. í þá stefnu komum við að dæld mikilli í hrauninu og var hellismunninn syðst í henni. Dæld þessi hafði sýnilega myndast við það, að hellirinn hafði hrunið þarna niður á allstórum kafla. Síðar sá eg að hver dældin var í framhaldsstefnu af annari langan veg hér fyrir ofan, í áttina til eldborgar mikillar, sem þar er upp frá og hraun þetta hefir runnið frá. Sumstaðar voru steinbogar uppi milli þessara niðurfalla, bútar af hellishvelfingunni og mátti þar sjá hellisveggina og gerð hvelfingarinnar í fullri dagsbirtu. En víðast hvar varð ekki skygnst inn í þá hluta hellisins, sem milli niðurfallanna voru. Allmikill gróður og kjörr eru í hrauninu, en í þessum dældum var þó miklu mestur gróður, bæði mikill og fagur og allmjög fjölskrúðugur. — Hellismunninn var nokkurn veginn hálfkringlumyndaður og breiddin neðst 11 metrar. Hafði hrunið hér mjög úr og myndast svo sem stórfeldur forskáli, 31 m. að lengd. Er við höfðum klöngrast inn eftir honum varð fyrir þverhniftur stallur, sem fara varð niður af og varð þá hellirinn þrengri og hélt nokkurn veginn upphaflegri lögun. Hann var hér 4V4 m. að vídd og veggirnir ámóta háir, með allsléltri steinstorku á, en uppi yfir þeim var ójöfn bogahvelfing, álíka há og vegg- irnir, svo að hæðin var öll frá gólfi um 8 m. á að giska. Par sem er hinn fyrnefndi stallur er hærra uppi til hægri handar afhellir einn og liggur hann norður á við aftur; hann er 45 m. að lengd og Vh—2 m. að hæð; breiddin er 41/3 m. minst, meiri innst, og verður þar fyrir íssúla og allrainnst lokast hann af niðurhruni. í líkri hæð er til vinstri handar uppi yfir stallinum skápur mikill út úr. — Afhella þessa og aðra skoðuðum við Halldór þá fyrst er við höfðum gengið einu sinni um allan aðalhell- inn. Tvö önnur loft eða afhella fundum við 157 m. frá aðalmunnanum; annað var mjótt, í áttina norðurávið og er inst í því op ofan í aðalhellinn; op það er sjálfgert í hraunstorkunni og ekki framkomið við brot. Hitt loftið er uppi yfir þessu; það er vítt og nokkuð útundir til vinstri handar og framávið; er þar innúr því mjó smuga

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.