Eimreiðin - 01.05.1920, Side 53
eimrejðiN] BRJÓSTMYND AF JÓNI EIRÍKSSYNI
181
henti hana safninu að gjöf. Fylgja hér myndir af henni
(3. og 4. mynd). Hún er öldungis eins og Bjarni amtmað-
ur hefir skýrt frá, en er úr venjulegu gipsi og virðist
hafa verið steypt sér og fest í líkneskið, sem að líkindum
hefir verið úr hinu islenska efni, svo sem Bjarni amt-
maður segir. Hefir það alt molnað, er líkneskið brotnaði,
en gipsandlitið haldið
sér óskemt. — Pað
kemur heim, sem
Bjarni amtmaður og
segir, að það sé líkt
andlitinu á mynd Ól-
afs próf., og því er
það að ætla má, að
hún sé gerð eftir
brjóstlíkneskinu; en
meira um það siðar.
Bjarni amtmaður
segir óvíst, hvenær
Bertel Thorvaldsen
hafi gert brjóstlíknesk-
ið. Ekki er óhugs-
andi, að hann hafi
gert það eftir að Jón
var fallinn frá. Eins
og tekið var fram,
virðist hafa verið til
upphleypt vangamynd
af Jóni; eftir henni,
minni sínu og tilsögn
annara er hugsan-
legt að Bertel Thorvaldsen hafi gert likneskið, eftir
beiðni, t. d. Grims Thorkelíns, sem Bjarni segir að hafi
átt það lengi. En gerð þessarar andlitsmyndar, svo ein-
kennileg sem hún er að ýmsu leyti, það, að hún er að
kunnugra dómi »lifandi eftirmynd« Jóns, og jafnvel það,
að líkneskið, að því er Bjarni amtmaður segir, var gert
úr íslensku efni, sem Jón hafði fengið sjálfur frá íslandi