Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Side 1

Eimreiðin - 01.07.1920, Side 1
EIMREIÐIN] 193 Þegar konur fyrirgefa —. Aldrei hefir ástin gert neinn mann svo tryltan af sælu, svo sælan af tryllingi, eins og mig árið sem eg kvæntist Miss Lillie Larkin. Hvað annað! Háls hennar og herð- ar voru síðasta kraftaverk skapar- ans: að gera marmarann lifandi. Boglinan frá vangabarðinu niður í þróttmikinn hökubroddinn var eins og hvítur skuggi af einhverjum draumi, er sjálfur hlaut að vera of litbjartur fyrir mannlegt auga. Og svo augað, já augað. Pað var eins og mjúkur purpurabrúnn blóðsteinn, greyptur inn í fullkominn perlumóðurávala. Greypiröndin bar ljómann af tóledó, þegar henni þótti, af blýdufti, þegar hún hugs- aði, og gerði augnaráðið hvast eða höfugt. En fegurst af öllu var hárið, eins og gullrauður kopar, sem geislar tunglsins svefja litblæinn á. t*að var hárið, sem gerði gang hennar svo fagran, því hún gekk tignarlegar undir haddi þess en nokkur drotning uridir kórónu. Svona var Lillie Larkin, þegar eg kvæntist henni. Hún var nítján og eg tuttugu og fimm. Eg var rithöfundur og hafði gefið út þrjár bækur. Við bjuggum í New York, þar sem bæði vorum fædd. Eg tignaði konuna mina, eins og konungur mánafjall- anna tignar sinn mikla krystal. Eg fann óviðjafnanlegan unað í öllu því sem aðrir mundu hafa lagt henni til lýta. Hvað hún var töfrandi til dæmis, þegar hún misskildi hverja skáldlega mynd, sem eg hafði spreytt mig á að finna upp henni til dýrðar. Eg sagði einn dag við Lillie rétt fyrir afmælið hennar: — Veistu hvað eg kalla gang þinn, þegar þú kemur á móti mér. Hvítagaldur kalla eg gang þinn. Guðin. Kamban. 13

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.