Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Page 3

Eimreiðin - 01.07.1920, Page 3
EIMREIÐIN) Þegar konur fyrirgefa — 195 í stað þess að biðja hana um að lesa Scbopenbauer, þaut eg beina leið niður í skóarabúð og pantaði tvær tylftir af aukabælum á allan minn skófatnað, tvær tylftir af hælum utanvert og innanvert. En nefið gafst ég upp við. Því þessir háu hælar breyttu að vísu stöðu nefs míns í rúminu, en lögun þess ekki vitund. Enginn eiginleiki hefir náð algerri fullkomnun fyr en hann felur í sér andstæður sjálfs sín líka. Þessi fullkomn- un bafði hreinskilni Lillie náð. Því voru engar skorður settar, sem hún gat látið sér detta í hug að segja af ó- sannindum. Hún hleypti á girðingar allra líkinda. Öll bennar frásögn moraði af skemtilegum, ginnandi drísil- djöflum ónákvæmni og ýkna. Skemtilegum og ginnandi fyrir hana — en, hamingjan veit, ekki fyrir mig. Það var þessi stefna, er hugmyndaflug hennar tók, sem olli fyrstu misklíð okkar: Það er naumast í frásögur færandi, svo smávægilegt var tilefnið. Það var sumarið eftir að við giftumst. Lillie var farin upp í Caskhill-fjöll, þar sem foreldrar hennar áttu landsetur, en eg varð eftir í New York til að sjá um út- gáfu á síðustu bók minni. Undir eins og síðasta örkin var komin úr prentvélinni, Iét eg hefta inn fyrsta eintakið og sendi henni það upp í fjöllin, eins og hún hafði beðið mig um. Tveim dögum siðar fæ eg elskulegt bréf frá Lillie. Um bókina skrifaði hún: »Hún er guðdómleg. Eg vakti alla nóttina í nólt og las hana, orði til orðs, spjald- anna milli«. Eftir fáa tíma var eg sestur inn i Pullman- vagn og rann á leið til Lillie — þjáður af samviskubiti út af því, að hafa valdið henni andvöku heila nótt, þó að það linaði mikið þjáninguna að vita, að ástinni minni fanst eg hafa skrifað guðdómlega bók. Hið fyrsta sem eg sá, þegar eg steig inn í svefnherbergi Lillie, var nýja bókin mín — óuppskorin, að undanskil- inni hálfri örk fremst og hálfri örk aftast. Nú get eg svarið við nöfn allra dýrlinga, að þó að eg sé hégóma- gjarn, sé hróðugur af að vera það, og telji þann eigin- leika með bestu mannkostum mínum — Þetta veitti hé- gómagirnd minni engan áverka. Drottinn minnl eg hefi

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.