Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Side 6

Eimreiðin - 01.07.1920, Side 6
198 PEGAR KONUR FYRIRGEFA — [ElMREIÐm öðru ári hafði eg auglýst eftir einkaritara i Herald, og Lillie áskildi sér að velja hann. Hún hafnaði stórum hóp af ungum og fríðum dömum, sem sóttu um stöðuna, og valdi Miss Clarke, af engu öðru skildist mér en þvi, að hún var hvorki ung né fríð. Hún var á að giska þrjátíu og fjögra ára, og svo ófríð, að eg lét hana vera sem minst inni hjá mér. Hana vantaði alveg höku, og nefið á henni var eins og álímd pappatota, síhvít af púðri^ eina ástríðan, sem hún vakti með mér, var löngunin til að þrýsta á þetta nef til að vita hvort mér skjátlaðist. En aftur reyndist hún að vera gædd frábærum gáfum og skarpskygni. f*að var einn dag, er öldur ósamlyndisins höfðu risið fullhátt milli okkar Lillie. Hún hafði hvað eftir annaö gert mig orðlausan með blátt áfram svo aulalegum at- hugasemdum, að mér þótti sem eg gæti ekki lengur hald- ist við i stofunni. Eg flýði inn til Miss Clarke, hungraður og þyrstur í skynborinn félagsskap. — Þér verðið að hjálpa mér — sagði eg við Miss Clarke og fleygði mér niður á stól — eg er þreyttur á sál og líkama. Þér megið ekki visa mér burt. Hættið að sarga á þessa fábjánalegu vél. Miss Clarke lét ekki trufla sig. Hún hélt áfram að skrifa og sagði, með augun niðri i handitinu: — Hvað get eg gert fyrir yður, Mr. Bright? — Alt milli himins og jarðar. í svipinn hafið þér meira vald á forlögum mínum en nokkur mannvera undir sól- unni. Bara þér vilduð nota það til að endurnæra anda minn með skynsemi yðar. Miss Clarke hætti að skrifa. Eg hafði aldrei séð hana verða svo herfilega, það var eins og augnaráð hennar dreypti eitri í orðin, þegar hún sagði: — Hafið þér nú uppgötvað að kvenleg fegurð er ekki alt? — Ekkert, Miss Clarke, ekkert. Þér hafið öll skilyrði til að gera eiginmann sælan. — Ekki eiginmann annarar konu, sagði hún og horfði á mig með nistandi ströngu augnaráði.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.