Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Side 14

Eimreiðin - 01.07.1920, Side 14
206 UM ÍSLENSKT VEÐRÁTTUFAR [EIMIiEIÐIN vestur, en oft eru þau fleiri en eitt á ferðinni í senn og valda þá mikilli óreglu og truflun á veðráttufarinu, bæði á vindstöðu, hita og úrkomu. Þó að lágþrýsti það, sem fyr var nefnt yfir norður- Atlantshafi, finnist með útreikningi loftvogar á löngum timabilum, má engan veginn ætla, að loftvogin sé jafnan lægri f}rrir sunnan ísland en norðan það; slíkt væri mik- ill misskilningur. Lág- og háþrýsti lofts færast alla vega til yfir lög og láð, líkt og öldur á sjó. En lágþrýstisvæðin eru venjulega hvikulli og valda tiðast hinu breytilega veðurlagi. Háþrýstin eru aftur á móti stöðugri; fylgja þeim meiri stillur og langviðri. Lofthvirfingarnir eru mjög breytilegir að lögun og útbreiðslu; þeir geta verið hring- myndaðir, aflangir og alla vega bugðóttir og afarmisstórir. Loftsveipir þessir eða loftöldur flytjast alla vega yfir lönd og höf og breyta sífelt lögun. Mismunur hita og kulda og ýmislegir staðhættir: höf, lönd og hnattstaða sveigja þá og beygja á allan hátt, kipra þá saman og þenja þá út, breyta stefnu þeirra, hækka þá og lækka o. s. frv. — þess nær sem öldutoppur er öldulægð og þess meiri mismunur sem þar verður á loftvoginni, þess meiri verða veðrabrigðin, en þess flatara sem lofthafið er, þ. e. þess minni mismunur sem er á loftvoginni á stóru svæði, þess jafnara og kyrrara er veðrið. Loftöldurnar geta náð yfir geysistór flæmi, mörg þúsund kílómetra, verið hundrað sinnum víðáttumeiri en alt ísland og þær geta Iíka verið margfalt minni en það. Ölduhryggur — maxím — getur t. d. verið uppi við íslandsstrendur, en öldulægð suður á Bretlandseyjum eða Þýskalandi. Öldulægð getur einnig verið yfir íslandi, en toppurinn yfir Færeyjum eða Norð- ursjónum og næstu öldulægðir austur á Rússlandi og vest- ur í Baffinsflóa eða suður á Spáni. þessar breytingar eru óaflátanlegar. Víðátta og hæð eða dýpt þessara loftbylgja er mæld með loftvoginni, samtímis á rnörgum stöðum og tilkynt samstundis, ásamt átt og magni vindsins, út- liti lofts og hitastigi. Eftir þessum athugunum eru veður- farsuppdrættir gerðir.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.