Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Page 25

Eimreiðin - 01.07.1920, Page 25
EIMREIÐIN] BJARTAR N.ETUR 217 Hvert dægurok á braut sig býr, er bergi’ eg þetta gamla vín. Nú breytist alt í æfintýr og æskublóminn vitjar mín. í glöðum nautnum guð eg finn, þær göfga mig í lengd og bráð; eg tek þeim glaður, maður minn, því mér er augljós drottins náð. Eg þekki margan galla-grip, sem getur aldrei hlotnast ró og ber því jafnan súran svip, en segist trúa’ á drottin þó, er smækkar lífsins smæsta bál og smánar alt, sem glæðir það. Eg gæti drukkið drottins skál og drukkið hana’ á vígðum stað. Nú líður óðum langt á nótt, nú lykur svefninn flestra brá. Og blærinn sjálfur blundar rótt, það bærist ekki nokkurt strá. Og sólin blessuð sígur rjóð, hún síðla gengur hvílu til; hún stráði um loftið gullnri glóð. Hún gyllir snemma bæjarþil. Eg vaki enn, og vornótt heit mig vefur hlýtt í faðminn sinn. Á meðan blundar svefnþung sveit eg sæki yngsta hestinn minn. Á hann skal verða hætt og treyst, eg hnakkinn minn á folann legg. Og Rauður minn, eg ríð þér geyst, uns roðar sólin fjallsins egg.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.