Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Page 33

Eimreiðin - 01.07.1920, Page 33
EIMRKIÐIN] KRÍLOF 225 þann og yfirgang, sem afskiftalaus og sljó yfirvöld láta óafvitandi við gangast. Eiriusinni var fíll nokkur gerður að landsstjóra yfir víðáttumiklu skógarflæmi. Sjálfur hafði hann ekki gert flugu mein, en hann vantaði alveg skarpskygni til að sjá þá kúgun og ójöfnuð, er aðrir höfðu í frammi. Nú fara honum að berast kvartanir yfir því að úlfarnir ætli bókstaflega að flá veslings sauðkindurnar lifandi. DÞorpararnir ykkar«, segir hann þá við úlfana, »hver hefir leyft ykkur að hafa slíka ásælni í frammi?« Úlf- urinn svaraði: »það voruð þér, landstjóri góður, sem leyfðuð okkur að taka ullarlagð af sauðunum okkur til skjóls í vetrarhörkunum, en þá fara þessir aumingjar að veina og kveina. Okkur dettur auðvitað ekki í hug að taka nema eitt reifi af hverjum þeirra, en þennan lagð láta þeir ekki öðru vísi en með eftirtölum og mótmæl- um«. »Jæja«, mælti fíllinn; »þið verðið að fara hægt og með lempni; ranglæti eða ójöfnuð líð eg ekki í nokkurri mynd; eitt reifi af hverjum er ykkur leyfilegt að taka, en ekki nokkurn lagð umfram«. — 7. Gróðafíknin og auðsgræðgin er efnið í dæmisögunni um fátæka ríka manninn. Einu sinni var betlari nokkur að virða fyrir sér kosta- kjör auðmannanna, og öll þau gæði, er þeir gætu veitt sér og notið; var ekki laust við að hann með sjálfum sér skopaðist að slíkum mönnum, er altaf væru að safna, en létu lífið líða án þess að njóta á nokkurn hátt auðs- ins. »Eg er hræddur um að eg færi einhvern veginn öðru vísi að«, sagði hann við sjálfan sig, »ef eg hefði nóga peninga«. — Rétt i þessu vék að honum ókunnur maður, er stakk að honum peningapyngju. »Hvenær sem þú stingur hend- inni í buddu þessa«, mælti hann, »mun þar verða fyrir þér gullpeningur; jafnskjótt og einn er tekinn er annar kominn í hans stað; þú verður því ekki lengi að fylla vasana. Buddu þessa vil eg gefa þér, en sú kvöð fylgir, 15

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.