Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Side 38

Eimreiðin - 01.07.1920, Side 38
230 KRÍLOF [EIMREIÐIN’ Að Krílof kom það líka betur að fá að lifa dáinn, má marka af dæmisögu þeirri, er hér fer á eftir. Einu sinni var skáld eitt, sem við basl og fátækt hafði átt að búa í lífinu, að kvarta yfir því við himnajöfurinn, hvað kjör sín hefðu verið bágborin og hamingjan sér andstæð. Horaður og hungraður,' rifinn og tættur og skó- laus sneri skáldið sér til Júppíters og bað hann líknar og ásjár. »Hvers hefi eg átt að gjalda«, mælti hann, »er forlögin hafa svo grimmilega elt mig og ofsótt alt mitt líf; eg hefi hvergi höfði mínu að að halla, og á ekki neitt af neinu. Það er einhvern veginn öðruvísi farið með hann nábúa minn hérna; hann hefir aldrei sagt eða skrifað nokkurt orð, sem gagn er í, enda eru gáfur hans mjög af skornum skamti — en þessi maður lifir í dj'rðlegum fagnaði, bjTr í skrautlegri höll, klæðist pelli og purpura, og kringum hann fult af fólki, sem tignar hann og til- biður«. »Þér þykir þá ekkert varið í það«, ansaði Júppí- ter, »að hljómar hörpu þinnar lifa löngu eftir að þú ert látinn, lifa og hljóma í ejTrum ófæddra kynslóða, og halda nafni þínu á lofti löngu eftir að þessi náungi þinn, sem þú ert að öfunda, er öllum gleymdur. Mundir þú ekki einmitt hafa kosið frægðina þér til handa, ef þú hefðir sjálfur mátt velja? Það er satt, að eg gaf honum auð og upphefð meðan hann lifði; en ef hann hefði skilið, í hverju sönn frægð er fólgin, og komið auga á það, hve verðmæti hans var lítið á móts við verðmæti þitt, þá mundi hann vissulega kvarta miklu sárara yfir hlutskifti sínu en þú yfir þínu«. — il. En ekki var Krílof samt hrifinn af öllum ritverkum eða rithöfundum. Kemur það fram í dæmisögunni um stigamanninn og frægan rithöfund, er með lævísi hafði laumað eitri inn í rit sin, flutt þar boðskap vantrúar og siðleysis. Lætur Krílof menn þessa mætast í skuggaríkinu og er þar tafarlaust kveðinn upp dómur yfir þeim. Eru tveir heljarstórir pottar hengdir neðan í keðjur úr rjáfr- inu, og er sökudólgunum hent sínum í hvorn pott. Undir

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.