Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Page 41

Eimreiðin - 01.07.1920, Page 41
EIMREIÐIN] 233 Utan úr heimi. Hringar Satúrnusar. í sólkerfi voru eru ýms fyrirbrigði, sem valdið hafa mönnunum mikilla heilabrota. Menn deila um það, hvort plánetan Marz sé bygð skynsemi gæddum verum eða ekki, hvort »skurðirnir« þar séu »handaverk« einhverra snillinga, er þar búi, eða séu aðeins náttúrufyrirbrigði eða ef til vill að miklu leyti sjónhverfing, og svo margt fleira. 1. mynd. Eitt af þessum vandasömu viðfangsefnum er hringar Satúrnusar. Satúrnus er að þessu leyti frábrugðinn hinum reiki- stjörnunum í sólkerfinu, að honum fylgja ekki aðeins tungl, heldur Iika þessir einkennilegu og stórfenglegu hringar, sem hann er girtur eins og fádæma megingjörð- um. Satúrnus rennur skeið sitt umhverfis sólina í hér um bil tífalt meiri fjarlægð en jörðin, og kemst þá leið á 29V2 ári. Hann hverfist um möndul sinn einn hring á 101/* klukkutímum, og er það afskapleg ferð þegar þess er gætt, að hann er 760 sinnum stærri en jörðin, en hún

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.