Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Side 43

Eimreiðin - 01.07.1920, Side 43
ElMIiEIÐIN"] UTAN ÚR HEIMI 235 stjörnum. Aldrei hefir þekkingarþjrstur maður teygað meir ómælt ódáinsdrykk náttúrunnar. — Svo beindi hann sjónaukanum að Satúrnusi. Og hvað sá hann? Hann skýrir sjálfur frá reynslu sinni með sjónaukann í riti, •sem hann kallaði »Boð frá stjörnunum«. Og um Satúrnus segir hann: »Eg sé stjörnu þessa þrefalda. Eg sé sinn hnöttinn hvoru megin við aðalplánetuna. Peir eru eins og þjónar, er leiða og styðja Satúrnus gamla á ferðalaginu umhverfis sólina og víkja aldrei frá hlið hans«. Galíleí hafði hér rekist á hringa Satúrnusar, þó að honum kæmu þeir í fyrstunni ekki svo fyrir sjónir. En hvernig tóku menn þessari uppgötvun? Ekki með öðru en háði og spotti. Gaiíleí hafði sjálfur sagt það, að væri sjónaukinn ækki góður, mundi Satúrnus ekki greinast sundur í þessa þrjá hnetti, heldur sjmast eins og éinn, aflangur hnöttur, -og svona fór það. Stjörnufræðingarnir sáu ekki þessa tvo »þjóna« Satúrnusar, og sökuðu Galíleí um ýkjur. Og nú kemur það, sem hrapallegast var við þetta alt. f*að var árið 1610, er Galíleí gerði fyrst þessa uppgötvun sína um Satúrnus. En þá stóð einmitt svo á, að hring- arnir voru búnir að ná mestu breidd sinni, eins og þeir sjást frá jörðunni, og voru nú teknir að mjókka aftur, svo að í stað þess að geta sannfært aðra, fór Galíleí sjálf- ur að sjá þá æ lakar og lakar, og að tveim árum liðnum voru þeir horfnir honum með öllu! Vér getum ímyndað oss hæðnishlátur andstæðinganna og vonbrigði Galíleís. Sagan segir, að hann hafi í bræði sinni svarið þess dýran eið, að beina sjónauka sínum aldrei framar að öðrum eins svikara og Satúrnusi! En hringarnir voru nú fundnir, og þeir skiluðu sér aftur á sínum tíma, og nú gat enginn efast lengur um þennan glæsilega skartgrip Satúrnusar. Sjónaukunum fór nú fram, og brátt komust menn betur og betur að raun um lögun þessa, sem Galíleí hafði sýnst vera tveir hnettir. Það var Hollendingurinn nafnkendi, Huj'gens (sá er fyrst- ur fann upp klukku með hengli), sem f}rrst lýsti hring- unum rétt, og leysti með því þetta mikla vandamál um hreytingarnar, sem urðu á útliti þeirra: Hringarnir voru

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.