Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Page 47

Eimreiðin - 01.07.1920, Page 47
EIMREIÐINi TÖFRATRIJ OG GALDRAOFSÓKNIR 239 komið á, og munum vér síðar athuga, hvað Carpzow segir um það. Sú1) sem pínd var, var fyrst afklædd og lögð á pínu- bekkinn. Þar var hún svo bundin rammlega föst með snærum. Venjulega var svo byrjað með »þumalskrúfunni«. Það voru járnklípur. sem skrúfaðar voru utan um þum- alfingurna, þar til hold og bein malaðist saman og blóð- ið spýttist út. Dygði það ekki, væri konan »forhert« og neitaði að meðganga, var hún klædd í »Spánversku stígvélin«. Þau voru venjulega svo löguð, að járnplötur voru lagðar utan um fótlegginn og skrúfaðar saman, líkt og »þumalskrúf- an«. Voru það óbærilegar kvalir. Stundum voru smá- gaddar innan á plötunum. Til þess að gera kvalirnar enn átakanlegri, var oft barið með hamri utan á plöturnar. Önnur tegund af spánverskum stígvélum var þannig, að fótunum var troðið niður í járnhólka og glóandi biki svo rent í hólkana. Þá var »teyging« og »lyfting« notuð. Höndurnar voru bundnar á bak aftur með sterku snæri. Frá höndunum lá svo snærið yfir hjól í rjáfrinu. Var svo tekið í snærið og þeim sem pyndaður var, lyft ofurhægt upp undir hjól- ið og niður aftur á víxl. Þetta var oft gert afarlengi, jafn vel tímum saman. Oft voru lóð hengd í fæturna til þess að auka kvalirnar. Stundum voru konur látnar hanga þannig meðan böðlarnir fóru heim til sín til snæðings, til þess að gefa þeim góðan tíma til sinnaskifta! Þó þóttu þessar helvísku kvalir oft ekki nógar, heldur var sjóðandi biki auk þess slett á bera líkamina, eða þá að logandi Ijósi var haldið undir iljunum, eða smá-tréflísar reknar undir neglurnar. »Naglaborðið« var eitt verkfærið. Konan var þá lögð nakin á borð, sem útbúið var með beittum nöglum, bund- in þar og látin liggja þar til naglarnir stóðu í beini. Al- 1) Hcr verður talað um konur, því að þær voru svo miklu fleiri, sem pind- ar voru til sagna um galdra, en karlmenn.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.