Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Side 48

Eimreiðin - 01.07.1920, Side 48
240 TÖFRATRÚ OG GALDRAOFSÓKNIR [eimreiðin gengt var að kefli var sett í munn þeim, sem píndur var, til þess dómarinn hefði frið fyrir óhljóðum. í »Carolina« er svo fyrir mælt, að engan megi pynda nema nokkurnveginn sannanir séu fyrir því, að viðkom- andi sé sekur, og engan megi pína nema einn klukku- tíma. En hvorugu þessu var hlýtt. Vér könnumst við »sannanirnar« í galdramálunum. Og um tímann er það að segja, að margir voru píndir, ekki aðeins klukkutím- um saman, heldur dögum saman. Stúlka ein í Norðlingen var pínd 22 sinnum, og kona í Baden 12 sinnum, og síð- ast samfleytt í 52 klukkutíma. Svo var lögum þessum hlýtt. t*á skorti ekki heldur ruddaskap og stór orð hjá böðl- unum. Meðal annars ógnanir eins og þessar: »Eg skal pynda þig þar til þú ert orðin svo þunn að sólin sjáist í gegnum þig«. Eða: »Eg sleppi þér ekki í einn, tvo, þrjá, ekki heldur í átta daga, fjórar vikur, hálft eða heilt ár, né nokkurntíma meðan líftóra er í þér«. Réttarbækurnar bera einnig vitni um hinn óheyrða ruddaskap. T. d. »Hin pínda öskraði sem mannýgt naut« o. s. frv. Dæmi: Katorina Lips, skólameistarakona í Marburg, á- kærð 1672: Hún er ámint að segja sannleika. En hún er föst við neitun sína, — — — Hún er »spurð stranglega« (pínd). Hrópar: »Æ! æ!« Er bundin. Hrópar hátt: »Ó! ó! Drott- inn á himnum hjálpaðu mér!« Taugin er fest. Hún hróp- ar á varðmanninn að handleggirnir brotni. Spánversku stígvélin eru sett á hana; skrúfuð fast um hægra fótinn og hún ámint að segja satt. Hún svarar ekki. Skrúfað um vinstra fótinn. Hún hrópar að hún viti ekkert og geti ekkert sagt, vitnar til hinsta dómsins, hún viti ekkert, tautar með sjálfri sér að hún viti ekkert. Vinstri skrúfan er skrúfuð og ákærðu lyft upp. Hún hrópar: »Drottinn Jesú, komdu mér til hjálpar«. Hún segist ekkert þekkja og ekkert vita, þó að hún sé pínd til dauða. Henni er lyft hærra. Þegir, en hefir áður fullyrt að hún sé engin galdrakona. Hert á skrúfunni á hægra fót. Hún hrópar: »Æ, æ!« Henni er sagt að segja sannleikann. En það sit-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.