Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Qupperneq 50

Eimreiðin - 01.07.1920, Qupperneq 50
242 TÖFRATRÚ OG GALDRAOFSÓKNIR ieimreiðin inn eftir að búið var að raka, og kveikja í. Það er yfir- leitt ómögulegt að lýsa þvi öllu. Bækur um þetta efni hafa jafnan meira og minna sitt hver, og sýnir það hve nám- an er ótæmandi. Og þó eru heimildirnar fyrir þessu ó- yggjandi, ekki neinar þjóðsögur eða kerlingabækur, held- ur dómsmálabækurnar sjálfar. Hér skal sett eitt galdramál, af því að það sýnir vel hvernig galdramálin æxluðust hvert af öðru. Það fór fram í Trier 1572. Eva nokkur, frá Keen var sökuð um það, að hun hefði lagst með djöflinum. Hún átti að vera göldrótt og hafði galdrað Hans nokkurn »græna« svo, að hann logaði af ást til hennar (en hún var gift). Hún svaraði að hún hefði enga hugmynd um galdra. Hún hafði einu sinni gefið Hans þessum hring. Hann hafði áður lofað að giftast henni. Lengra var prófið ekki í það sinn, og henni var varpað í fangelsi. Sama dag um kvöldið er hún leidd fram fyrir amt- manninn, ákærandann og tvo meðdómsmenn. Hún kvaðst enga galdra kunna. Böðlarnir þrifu hana þá og bundu hana á pínubekkinn. Henni féll allur ketill í eld, og játaði hvað, sem vera vildi. Og til þess að koma sem fyrst úr hinum óbærilegu kvölum, nefndi hún aðrar konur, sem hefðu kent henni. Nú var hert á kvölunum. Hún hrópar þá, að ef hún sé látin laus skuli hún játa alt. Hún sé göldrótt. Þegar hún var orðin laus sagði hún amtmanninum, að kona, að nafni Barbara, hafi leitt sig til myrkrahöfð- ingjans. Hafi hún þar svarið sig frá guði og sýnt djöflin- um fulla þjónustu, með þessum orðum: »Eg segi mig frá guði til djöfulsins og er nú hans eigin eign«. Hún játaði líka að hún hefði nokkrum sinnum verið á leynifundum með þeim vonda. Hún hefði oft verið með Barböru i því að galdra menn og skepnur. Sunnudaginn næstan fyrir hvítasunnu hafi hún hjálpað til að gera haglél. Oft hefði hún verið með í galdrakvenna-dansleikjum. Svo nefndi hún tvo menn, sem hefðu spilað á ílautur við þá dans- leiki. Alt þetta gerði hún af hræðslu við kvalirnar. Alls
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.