Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Síða 58

Eimreiðin - 01.07.1920, Síða 58
250 [EIMREIÐIN Freskó. Saga eftir Ouida. [Framh.] Konunglegu gestirnir voru hér í þrjá daga aðeins, og kvað hafa skemt sér ágætlega. Áður en þau fóru, létu þau senda eftir mér inn til sín og auðsýndu mér mikla náð og hylli. Flestir gestirnir fóru um sama leyti. Á morgun ætlar hún að fara að sitja fyrir aftur. Eg er hrædd- ur um að gömlu frú Cairnwrath hafi ekki getist allskostar vel að því, hvað mikið lof og hylli eg fékk af þessu konunglega fólki. En hvað gerir það til? Þær fara bráðum aftur. Veturinn langi fer að byrja og svo kemur vorið, og þá verða freskó-myndirnar og myndin af henni búnar. Og þá fer eg burtu og hún hvorki heyrir mig lengur né sér, né man. Eitt er vist og það er, að eg tek ekki nokkra borgun fyrir verk mitt hér. Eg hlýt það líklega af þessum mynd- um, að eg verð frægur maður, og fyrir það er eg þakk- látur. Og þó hirði eg ekki um venjulega frægð. Eg hugsa aðeins um listina. Eg er hæst ánægður, ef eg hefi svo mikil efni, að eg get lifað af þeim eins og eg þarf til þess að geta unnið að hugsjónum mínum. Eg hlýt að þreyta yður fjarskalega með öllum þessum sögum minum, en mér er svo mikill hugarléttir að því, því að hér er eng- inn, sem eg get talað við og birt hugsanir mínar um alt þetta. Eg þori ekki að tala svo við greifinnuna og get ekki talað svo við aðra. En þér eruð skriftafaðir minn og hafið verið það frá því er eg drýgði fyrstu syndina!« Llandudno lávarður, Milton Ernest, til hr. Hollys, Róm: »Kæri Hollys! Það dugði ekkert. Hún tók það nú í sig að vilja fara heim og bauð heilum hóp með sér, og svo tilkynti prinsinn og prinsessan auk þess komu sina í lok mánaðarins, svo að ekki var neitt undanfæri að

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.