Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1920, Page 59

Eimreiðin - 01.07.1920, Page 59
EIMREIÐINl FRESKO 251 fara heim. Þar með var að engu gert alt það, sem eg hafði áunnið með dugnaði mínum og herkænsku. Hún er nú að láta málarann gera mynd af sér, og hvað sem annars býr undir öllu þessu, þá er það víst, að hrifning hans fyrir henni ætlar þar að verða upp- spretta að verulegu meistaraverki. Þessi piltur er annars undur friður og prúðmannlegur, og svipur hans minnir mig á einhvern, en eg man ekki hvern. Esmée gerði alt sem hún gat til þess að mega leiða hann fram fyrir prinsinn og tókst það. En eg gæti best trúað, að hún gerði það til þess að erta Tabby gömlu. Það er aldrei hægt að vita, hvað býr undir því, sem Esmée gerir. Hún þekkir lífið og mennina út í æsar, og það má eiga það nokkurn veginn víst, að hún gerir ekkert út í bláinn. Þó sýnist hún reyndar stundum alt í einu fara að snúast eins og vindhani. Enginn vafi leikur á því, að ítalinn tilbiður hana. Síð- ast þegar eg var hérna, sýndist mér hann hafa yfirhönd- ina, en nú er hún víst búin að ná völdunum. Eg held að hún sé aðeins að íeika sér með hann, og er það leitt hans vegna. En hvað getum við? Esmée er ekkert lamb. Ef þér hefðuð sent þennan asna með heiðursmerkinu og því öllu, þá hefði betur farið. Hún segist ætla að fara til Cannes í næsta mánuði, og hefir gefið skipun um að hafa »Glaucus« tilbúinn. Varla fer hún að taka málarann með sér? Ekkjufrúin Cairnwrath segir, að við, þér og eg, eig- um alla sökina á þessu. En mér er ekki alveg Ijóst, hvernig eg get átt sök á þessu. En meðal annara orða, ef nú svo skyldi fara, að við þyrftum að eiga eitthvað meira saman við þennan mann að sælda, þá ættuð þér að grenslast eftir því, af hvaða ættum hann er og annað slíkt«. Hr. Hollys, Róm, til Llandudno lávarðar, Milton Ernest: »Kæri Llany! Það er ekki eftir neinu að grenslast. Hann hefir engar dulur dregið á uppruna sinn. Hann er sonur stúlku í Fontanella, og afi hans var það sem kall- að er »bullero«, það er: hann var nautahirðir. Presturinn í Fontanella elskar hann mikið, en er honum annars ó-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.