Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1917, Page 125

Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1917, Page 125
Hið íslenska fræðafjelao; í Kaupmannahöfn 25 Pað flytur fræðandi ritgjörðir um ýms tíðindi og greinar um merka menn cg nýjar bækur. Það mun gera sjer far um að verða gagnlegt rit handa alþýðu, og vera svo ódýrt, að allir geti eignast það; nú sem stendur er það ódýrasta bókin, er kemur út á íslensku. B. Th. M. Hið íslenska fræðafjelag í Kaupinannahöfn var sett á stofn 14. maí 1912. Pað hefur gefið út: Endurminningar Páls Melsteðs með myndum. 2,50. »Oss finst þetta skemtilegast allra íslenskra minningarrita. Yms rit þeirrar tegundar mjög svo læsileg um merka menn þjóðar vorrar eru þó út komin í seinni tíð. En í þetta þykir oss mest spunnið. Par ræður tvent: Annað það, að höfundurinn ritar hjer um sjálfan sig, sína eigin persónu- legu lífsreynslu, það í samtíðinni, sem hann var helst við riðinn og skifti frá sjónarmiði hans mestu máli, — og gjörir það svo einkar vel eða nota- lega. Enginn ritar fegra mál íslenskt en Páll Melsteð, og er fegurðin hjá honum einkum í því fólgin, hve mál hans er látlaust og ljett. Öll rit- verk hans hafa þetta sjer til einkennis, — en þó ekkert þeirra eins mjög og þetta síðasta; þar hefur honum fyrst verulega tekist upp í þeirri grein, enda hefur hann þar sett sjer að rita sem allra næst því, sem hann talaði daglega. En hann talaði yndislega, einkum er hann var að segja sögur. í slíku máli er list, eins konar skáldskapur. Hitt, sem því ræður, að »Endurminningar< Páls Melsteðs þykja oss svo dýrmætar, er það, að þar birtist mynd eins af allra bestu mönnum þjóðar vorrar, án þess að nokkuð sje skekt, að vorri þekking nákvæmlega eins og maðurinn var í reyndinni.« Dr. síra Jón Bjarnason, Sameiningin 27. árg., bls 316. Brjef Páls Melsteðs til Jóns S i gu r ð s so n ar. 2,00. ^Pessi brjef eru engu síður fróðleg og skemtileg en Endurminning- arnar, og þurfa hinir mörgu vinir Páls jafnt að eignast bæði ritin. Og enn betur skína mannkostir Páls út úr brjefúnum.« Biskupinn, Nýtt kirkjublað. Píslarsaga síra Jóns Magnússonar, um galdramál, með inn- gangi eftir Sigfús Blöndal. 1. h. 1,50; 2. h. 2,00; 3. h. 1,50. Öll heftin 5,00. »Bókin er dýrmæt heimild að menningarsögu okkar.« N. í ísafold, Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns, 1. b., 1.—4. h., bókhlöðuverð 2,25 hvert hefti, verð fyrir kaupendur að allri Jarðabókinni 1,50 hvert hefti. 5. h. bókhlöðuverð 3,00, áskrifendav. 2,00. Bókhlöðuverð er 45 aura örkin, en áskrifendaverð 30 aura. Jarðabók þessi er mjög fróðleg um margt, og hið langbesta heimildarrit, sem til er, um hag bænda og búnaðarástandið á íslandi á síðari hluta 17. aldar og í byrjun 18. aldar. í henni eru nafngreindir allir ábúendur og jarðeigendur. Ferðabók eftir Porvald Thoroddsen, hin mesta og fróð- legasta ferðabók, sem út hefur komið um ísland. Öll bókin, 4 bindi, 23 kr. Nokkur eintök óseld; upplagið var 470 eintök. Orðakver einkum til 1 e i ð b e i n i n g ar u m rjettritun eftir Finn Jónsson, innb. 0,75. Besta og ódýrasta stafsetningarorðabók íslensku, hin eina, er skýrir frá uppruna orða.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn
https://timarit.is/publication/249

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.