Aldamót - 01.01.1893, Page 95
95
Hverjar eru afleiðingarnar af þessari trúar-
neitun?
Með þessari trúarneitun er gildi ritningarinnar
hrundið. Ef kenning hennar um eilífa vansælu er
ósannindi, þá er alls engin vissa fyrir því, að aðrir
lærdómar hennar sjeu sannir. Það er jafnvel alls
eigi líklegt. Getum vjer trúað því, að ritningin segi
oss satt í öðru orðinu, en ósatt i hinu? Getum vjer
skoðað ritninguna þannig, að hún sje ofin saman af
tvennu: sterkustu ósannindum og himneskum sann-
leika? Skoðum þetta og frá annarri hlið. Guð-
spjallamennirnir leggja alla aðalkenninguna um ei-
lífa vansælu írelsaranum sjálfum í munn. Ef þessi,
kenning er röng, þá er eitt af tvennu. Annaðhvort
hefir hann aldrei talað þau orð, er þeir leggja hon-
um í munn. Og þá eru frásögur þeirra ósannar og
óáreiðanlegar. Eða hann hefir sjálfur talað ósönn
orð og flutt ranga kenning. Og þá getur hann eigi
verið guð og frelsari vor. Þannig kollvarpar neitun
eilífrar vansælu gildi heilagrar ritningar. Og með
því er allri vissu fyrir kristinni trú hrundið, og
kristindóminum lífshætta búin.
Trúarneitun þessi er mjög skaðvænleg fyrir
alla kristna trú. Þetta sjáum vjer glögglega, þegar
vjer virðum fyrir oss innbyrðis samband trúarlær-
dómanna. Öll aðalatriði kristinnar trúar mynda
eina lifandi lífsheild. Ekkert atriði má vanta. Þau
eru ein lifandi hringkeðja, sem spennir yfir himin
og jörð og alla tilveruna. Ekki einn einasti hring-
ur, ekki einn einasti hlekkur má missast úr keðju
þessari, þá er keðjan brotin og orðin ónýt. Krist-
indómurinn er lífsvjel þjóðanna, sem knýr þær á-
fram til andlegrar fullkomnunar og sælu. Ef einu L