Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Page 2

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Page 2
hún var starfinu vel vaxin og áhuginn og samvizkusemin með eindæmum. Störf þessi hafði Jóna með höndum allan þann tíma, er .ég var í Gróðrarstöðinni, að tveimur árum fráskildum, eða sam- tals 23 sumur. Þessari þrautseigju hygg ég að hafi valdið fremur það ástfóstur, er hún hafði tekið við starfið og stöð- ina, heldur en að fyrir launum eða aðstöðu væri að gangast, því hvort tveggja var áreiðanlega naumt skorið, og þar við bættist, að þetta var aðeins 5—6 mánaða starf ár hvert og var því fjarri því að vera stöðug atvinna. Að vetrinum dvaldi Jóna á heimili sínu Sökku í Svarfaðardal, en þar var hún fædd og uppalin, þar voru systkini hennar og þar átti hún ávallt öruggt athvarf, þá tíma, er hún ekki dvaldi utan heim- ilis við garðyrkjustörfin. Jóna M. Jónsdóttir var sem fyrr segir fædd á Sökku 13. júlí 1887, en andaðist á sjúkrahúsinu á Akureyri 20. ágúst 1969, fullra 82 ára að aldri. Síðustu ár ævinnar átti hún við mikla vanheilsu að stríða og lá þá lengst af á sjúkrahúsi. Hún var mikil skapgerðarkona, ákveðin í skoðunum, stefnuföst, hlý í viðmóti og viðkvæm í lund. Sjúkdóm sinn bar hún með þolgæði og fannst mér sálarstyrkur hennar vaxa eftir því, sem sjúkdómslegan lengdist og líkamlegur máttur þvarr. Skýrleika sínum í hugsun hélt hún til hinztu stundar. Þann- ig er gott að skilja við þetta líf. Maria Daníelsdóttir tengdist Ræktunarfélagi Norðurlands og starfinu í Gróðrarstöð félagsins á hliðstæðan hátt og Jóna M. Jónsdóttir, þótt viðfangsefnin væru önnur. I Gróðrarstöðinni var sá háttur á hafður, að starfsemin hafði mötuneyti fyrir starfsfólk sitt að sumrinu, en þá var það jafnan miklu fleira en á veturna, olli því bæði námskeið- in og svo vinnan við heyöflun og ræktunarstörf. Varð þá að hafa matráðskonu til þess að veita mötuneytinu forstöðu. Sá ljóður var á þessu starfi, að það stóð aðeins í 5Vá mánuð ár hvert og auk þess hvorki fyrir launum né aðstöðu að gang- ast. Var því erfitt að fá konu í þetta starf, er vildi bindast því til langframa. Þá var það, að María Daníelsdóttir tók þetta 4

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.