Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Side 5

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Side 5
MAGNÚS ÓSKARSSON: VAXANDI SKAMMTAR AF FOSFÓR- ÁBURÐI Á NÝRÆKTAÐA MÝRI INNGANGUR Árið 1962 var hafin tilraun með vaxandi skammta af fosfór- áburði í nýrækt á Hvanneyri og tveimur árum síðar á Reyk- hólum. Grein þessi fjallar aðeins um tilraunina á Hvann- eyri. Megin tilgangur tilraunanna var að ákveða hve mikið væri ráðlegt að bera á af fosfóráburði í nýræktarflög og hvaða aðferðum ætti að beita við dreifinguna. Það er lítið af íosfór fyrir jurtir í mýrarjarðvegi á Faxa- flóaundirlendinu norðan Skarðsheiðar. Nokkrar fosfórtil- raunir hafa verið gerðar á þessu svæði og um þær hefur Friðrik Pálmason et al (1966) ritað grein. í niðurstöðum greinarinnar segir: „Árleg notkun fosfóráburðar (þrífosfats) reyndist betur, en stórir skammtar til margra ára. Þegar stórir skammtar af fosfóráburði voru bornir á til margra ára, féll fosfórprósenta grassins ár frá ári.“ Mýrin, sem tilraunin frá 1962 var gerð á, var ræst fram árið 1960. Spildan var plægð og kýfð 1961 og unnin með tætara 1962. Mýrin er fremur flöt og 1—1,5 m djúp. Rúm- þyngd jarðvegsins er 0,2—0,3 g/cm3 og glæðitap eða lífræn sambönd 55—65%. Athygli Skal vakin á því, að í grein þessari tákna tölur fyrir fósfór í áburði og uppskeru og kalí í áburði hrein efni, P og K, en ekki sýringa efnanna, P2Os og KuO eins og áður hefur tíðkazt. Öll árin sem tilraunin stóð voru þurrviðrasöm og sumar- 7

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.