Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Side 38

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Side 38
ÝMISLEGT UM JARÐVEGSLÍFIÐ Vegna þess hve flestar jarðvegsverur eru smáar, er þess að vænta að fjöldi þeirra sé mikill, enda hafa athuganir sýnt að svo er, og að fjöldi þeirra í rúmmálseiningu er yfirleitt í öfugu hlutfalli við stærðina. Því eru örverurnar langtum fjölþættastar, einkum bakteríurnar en fjöldi þeirra getur verið frá einni billjón upp í þúsund billjónir í einum fer- metra lands. Þá geta frumdýr verið frá hálfri til einni billjón í sömu landsstærð. Smáverurnar (mesobiota) koma næstar að fjölda. Eftirfar- andi tölur eru teknar eftir Dunger (1964) úr Brauns (1968) og eiga að vera meðaltöl úr ýmsum jarðvegsgerðum í Ev- rópu. Til samanburðar eru tölur (meðaltöl) úr þremur reit- um í mólendi á Árskógsströnd, eftir athugunum sl. sumar. Eins og áður eru tölurnar miðaðar við einn fermetra, og um 20—30 sm dýpi: Smáverur Evrópa Meðaltal Árskógsströnd Meðaltal Hjóldýr 25.000 2.000 Þráðormar 1.000.000 345.000 Maurar 100.000 63.000 Mordýr 50.000 42.000 Af hinum stærri dýrum eru pottormarnir fjölþættastir. Þeir eru taldir að meðaltali um 10.000 í einum fermetra af jarðvegi í Evrópu, en reyndust aðeins rúmlega eitt þúsund í mólendi á Árskógsströnd. Hins vegar reyndust skordýr og skordýralirfur næm tvö þúsund, en eru að meðaltali talin um 350 í evrópskum jarðvegi. Ánamaðkar eru taldir að meðaltali um 80 á fermetra, en þeir voru aðeins athugaðir í einum reit og voru þar um 160 á fermetra, en sennilega er lítið eða ekkert af þeim í ýmsum öðrum gróðurlendum. 40

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.