Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Side 50

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1969, Side 50
Bakteríurnar eru alls staðar nálægar, og í jarðveginum úir og grúir af þeim. Þar valda þær fleiri og fjölbreytilegri efna- breytingum, en allar aðrar lífverur til samans, og yrði of langt að telja það hér, enda er bakteríufræði jarðvegsins nú víða skoðuð sem sérstök fræðigrein. (Vísast hér til kennslu- bóka í almennri jarðvegsfræði og bakteríufræði (gerlafræði). 2. Geislasveppir (Actinomycetes) eru flestir þráðlaga og mynda gró, og líkjast því nokkuð eiginlegum sveppum, t. d. myglusveppum, en ekki er talið að sú líking bendi til skyld- leika, enda eru geislasveppirnir líkari bakteríunum í eðli og uppbyggingu frumanna. Geislasveppir eru algengir í hvers konar jarðvegi. Nokkrar tegundir lifa í sambýli við rætur og binda köfnunarefni, t. d. í rótarhnúðum elrisins. Þá lifa nokkrir í taði, og valda líklega gerjunum í því. Ann- ars er fremur lítið vitað um þýðingu geislasveppanna. Um bakteríur og geislasveppi í íslenzkum jarðvegi er sama og ekkert vitað. 3. Blágrœnupörungar (Cyanophycea) eru einnig þráðlaga, og hafa blágrænt litarefni í frumunum, eins og nafn þeirra bendir til, en litarefni þetta er eins konar blaðgræna, og gegnir sama hlutverki og hún. Þrátt fyrir þetta, virðast blá- grænuþörungar ekki vera skyldir öðrum þörungum. Tals- vert er af blágrænuþörungum í yfirborði jarðvegsins, eink- um ef hann er blautur og lítið gróinn. Ymsar tegundir þeirra geta unnið kijfnunarefni loftsins, og bæta þannig jarðveginn. Um 120 tegundir blágrænuþörunga hafa fundizt hér á landi. (J. Boye-Petersen, 1928), en fiestar þeirra lifa í lindar- vatni eða laugum. JURTIR (PLÖNTUR) Plönturnar eru mjög margbreytilegur lífveruflokkur, og fátt um sameiginleg einkenni. Ásamt dýrunum hafa þær full- komnar frumur í líkama sínum, og frumuskiptingin fer fram eftir ákveðnum, flóknum reglum, sem eru í meginatriðum 52

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.