Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Blaðsíða 7
GRÍMUR THOMSEN
7
Vafalaust hefur íslandsminnið í Uppsölum yljað Grími um
hjartarætur. Má hann þá vel hafa minnzt merkilegs fyrirlestrar
síns um stöðu Islands í Skandinavíu (einkum bókmenntalegri),
sem hann hafði flutt í félagi Skandínavista í Kaupmannahöfn
rúmum tíu árum fyrr og hlotið maklegt hrós fyrir. Gleði Gríms og
ánægja yfir þessu sjaldfengna eða nánast einstæða tækifæri til að
koma fram á erlendri grund sem fulltrúi ættjarðar sinnar leynir
sér hvergi og kemur meðal annars glöggt í ljós í bréfi til Sigurðar L.
Jónassonar, rituðu 4. ágúst 1856. Þar segir Grímur meðal annars:
„----Þar er sögunni komið, að jeg þann 9da júní fór til Uppsala
með eldri og yngri vísindamönnum héðan, var það mikil gleðiferð,
var þar meðal annars drukkið minni Islands, og svaraði jeg í
snjallri tölu, sem góður var gerður rómur að og sem þú skalt fá að
lesa, komist þú lifandi frá Spitzbergen. Þaðan fór jeg til
Stockhólms og át miðdagsverð með konungi Svía í Drottningar-
holms-sloti svo þú sérð að jeg hef líka etið mat með konungum og
konungsefnum eins og sumir —
Góð vinátta hefur tekizt með þeim Sáve dósent í Uppsölum og
Grími, og skiptust þeir á bréfum, það sem eftir var ársins. Avarpar
Grímur Sáve kumpánlega og þúar hann í bréfum sínum, sem
honum var þó ekki mjög tamt.
Grímur kom aftur til Kaupmannahafnar um miðjan júlí og
hafði ekki setið þar lengi, áður en hann stakk niður penna til að
skrifa þessum sænska vini sínum (23. júlí) og segja honum frá því,
sem á daga hans hafði drifið frá því þeir skildu eftir Uppsalamótið,
en þá hafði Grímur haldið suður eftir Svíþjóð og þaðan til Noregs
og hitt marga að máli. Umrætt bréf Gríms birtist hér svohljóðandi:
„Kæri Sáve,
Þegar eg hef sent, eftir heimkomu mína frá Noregi 14. júlí,
talsvert mörg Uppsala- og Stokkhólmsbréf, kem eg nú til þín, eins
og Englendingar segja, last not least, góðvinur minn, til að rabba
við þig svo sem hálfa stund.
Eg byrja þá á byrjuninni eftir að hafa þakkað þér fagrar og
vinsamlegar viðtökur í Uppsölum, minni Islands, sem landar
mínir, einkum Gíslason, Sigurðsson og Brynjúlfsson [Konráð, Jón
og Gísli] senda þér þakkir fyrir o.s.frv., o.s.frv., þá verð eg að segja
þér, að á gufuskipinu frá Gautaborg til Kristjaníu var eg svo
heppinn að kynnast ríkisskjalaverðinum Norrström, sem er aug-