Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Blaðsíða 67
TIL HALLDÓRU BJARNADÓTTUR
67
Gulliksen har det bra. Det er nu stor Juletravelhet i utsalget.
Bredal er i vigör og meget interessert i sine finske tekstilfar.
Ogsá Br(edal) vil slutte nu. Lykkelig du som far arbeide i fred og
ro.
En venlig hilsen fra min hustru og din Kollega.
M. F. N.
Hafrafellstungu, (Öxarfjarðarhreppi, N.-Þing.), 12. okt. 1940
Bréf frá Sigurveigu Björnsdóttur
Hér hafa barnagrindur verið notaðar í fleiri áratugi, og hefir
Gunnar mágur minn smíðað þær fyrir þó nokkrar konur hér í
sveit og þær svo lánað öðrum eftir hentugleikum.
Þessar grindur hafa þó ekki verið með hjörum, en hafa átt sinn
vissa stað í eldhúsinu. En margt gott ráðið er Hlín búin að bera á
milli okkar kvennanna, og það vona ég, að við kunnum bæði að
meta það og þakka.
Með kærri kveðju og bestu óskum um góða framtíð á jörðinni
nýkeyptu.
Hofi, pr. Hofsós, Hofshr. Skagaf. 17. nóv. 1943
Bréf frá Sigurlínu Björnsdóttur
Kæra Halldóra!
Bestu þökk fyrir komuna í sumar, svo og fyrir Hlínarsendingar.
Mér þykir alltaf vænt um, þegar ég fæ Hlín. Eg vil einnig með
þessum fátæklegu línum færa þér mínar innilegustu hamingjuósk-
ir í tilefni af afmælinu þínu 14. okt. sl. Eg var búin að ákveða að
senda þér skeyti, en svo var ég á ferð til Reykjavíkur um það leyti
og við hjónin, svo að ekkert varð úr því. Ekki vorum við nema viku
í þeirri ferð, enda nóg að snúast við heima eins og vant er. Fólk er
með fæsta móti hér í vetur eins og víðast á sveitabæjunum. Dóttir
okkar er nú reyndar alveg nýfarin til Siglufjarðar og ætlar að
sauma þar mánaðartíma. Annars er hún nú að miklu leyti heima.
Sjálf hefi ég verið mesti bjálfi fyrirfarandi af mjög vondu kvefi,
sem gengið hefir hér og er langt frá að ég sé jafngóð ennþá. Það er