Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Blaðsíða 71
TIL HALLDÓRU BJARNADÓTTUR
71
Heklugoss 29. mars, að kveikja varð ljós yfir matborði um hádegi
og ekki sást til sólar í heiðskíru veðri fyrr en kl. 5, og varð haglaust
fyrir búfénað í margar vikur vegna öskufalls, en þessu var tekið
með jafnaðargeði og stillingu. En ekki fannst mér það vera til að
telja kjark í fólk, er þetta var að dynja yfir, er útvarpið tók til að
þylja upp þær hörmungar, er áður höíðu dunið yfir þessa þjóð.
Maður veit aldrei, hvað getur orðið og ekki allir svo sterkir, er búa í
nánd við þennan vágest.
Nú síðustu daga hefur verið talsvert öskufall hér, en maður er
nú alltaf að vona þetta taki enda og guðshönd verndi okkar kæra
land.
16/12 1947
Bréf frá Sigurbjörgu Björnsdóttur, Deildartungu
Eg óska þér innilega til hamingju með afmælisbarnið, það er
Hlín 30 ára. Það þarf mikla elju og hagsýni til þess að halda úti
ódýrasta ársriti landsins í 30 ár og gera það jafn vel og notalega úr
garði og Hlín. Slíkt er ekki á allra færi. Eg held, að það geti enginn
nema Halldóra Bjarnadóttir. Langlífi Hlínar ber líka vinsældum
hennar vitni, en þær öðlast enginn fyrir ekki neitt.
Það eru ekki mörg rit nú á dögum, sem bera með sér þann hlýja
holla blæ sem hún. Þar miðar allt að því að efla og viðhalda þeim
verðmætum, sem best hafa dugað íslensku þjóðinni „gegnum
sælu, sorg og voða“ liðinna ára og alda. Hún er unnandi allra
sannra framfara, en um leið vörður fornra dyggða og þjóðlegra
verðmæta. Ég þakka henni starfið og óska að eiga eftir að njóta
ánægjunnar af að lesa hana lengi enn.
Skeggjastöðum, 22. ágúst 1949
Bréf frá Þóreyju Brynjólfsdóttur
Kæra Halldóra!
Eg hitti í sumar Jónínu frá Geirólfsstöðum, barst þá í tal á milli
okkar, að þig hefði langað til að fá mynd af mottu unna af Einari
Hallssyni, sem er hér til heimilis hjá mér, og sagði hún ennfremur,
að þig myndi langa til að eignast eina slíka úr hrosshári og það líka
með, að þú hefðir gjarnan viljað fá mynd af honum einnig, en
hann er nú lítið gefinn fyrir að láta mikið bera á sér út á við.