Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Blaðsíða 84
f
84 LANDSBÓKASAFNIÐ 1988
Harðarrímur o.fl. eftir Sveinbjörn Beinteinsson. Eiginhandar-
rit. Gjöf höfundar.
Af keyptum handritum skal þessara getið:
„Voyage de la Viliar 1872“. 18 ljósmyndir, 3 frumljósmyndir, en
hinar myndir af teikningum og málverkum þýzka listamannsins
T. von Eckenbrecher. Keypt af Damms Antikvariat í Ósló.
Orðabók Hannesar Finnssonar biskups, A-Ö. Eftirrit (sbr. Lbs.
99 fol.). Keypt af erfingjum Péturs Ólafssonar í ísafold fy rir
meðalgöngu tengdasonar hans, Gunnars Ólafssonar starfsmanns
ríkisskattstjóra.
Þessir afhentu gjafir án þess að þeirra verði nánar getið:
Dr. Aðalgeir Kristjánsson, Ragnar Ágústsson bókavörður,
Morris R. Spivack.
ÞJÓÐDEILD Ritauki þjóðdeildar var á árinu 5027
bindi, þar af 297 erlend rit um íslenzk
efni. Mikil áherzla var lögð á skráningu íslenzka efnisins, er dregizt
hefur verulega úr hömlu. Mun þó árangurs í útgefnum ársskrám
naumast verða að vænta fyrr en á árinu 1989.
Þjóðdeild bættist ein ný staða á árinu eða frá 1. apríl, og var
Hallfríður Baldursdóttir bókasafnsfræðingur ráðin í hana. Verk-
efni hennar er að vinna við íslenzk blöð og tímarit, þátt, sem lengi
hafði vantað aukinn starfskraft til. Ekki verður nú sagt, hvenær
tekst að koma saman og út skrá um íslenzk blöð og tímarit eftir
1973, en mikil þörf er nú orðin á slíkri skrá.
Tölvukostur deildarinnar var aukinn og bættur, og er þar nú í
gangi ein Island AT-vél og önnur IBM PS-2-80, öflug og fljótvirk
vél með miklu geymslurými, en á það reynir mjög, þegar mikið
efni er haft undir í einu.
DEILD ERLENDRA Erlendur ritauki var á árinu 1661 bindi.
RITA Mikið verk var unnið við að kanna
erlendan ritakost safnsins, magn hans
og ásigkomulag vegna fyrirhugaðrar sameiningar Landsbóka-
safns og Háskólabókasafns og þar með bókakosts þeirra. En það
verk á eftir að fara vaxandi, eftir því sem nær dregur sameining-
unni, og erfitt að sjá, hversu fámennt starfslið safnanna fær annað
því, ef ekki fæst nauðsynlegur liðsauki. Þrengslin í söfnunum og