Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Blaðsíða 42

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Blaðsíða 42
42 NANNA ÓLAFSDÓTTIR bæjarbúum hinn mesti óþarfi, „en vildu láta kenna dönsku sem mest“. Heimilin áttu að sjá um handavinnukennslu. Halldóra Bjarnadóttir liafði próf í handavinnukennslu. Hún segir: Tilætl- unin með handavinnukennslunni er að temja huga og hönd nemendanna við verkleg störf og hefja þau í áliti foreldra og barna með því að taka þau upp meðal námsgreinanna. Þegar Halldóra Bjarnadóttir kom að Akureyrarskólanum, beindi hún nöfnu sinni, Halldóru Vigfúsdóttur, til Noregs til náms í föndri, bastvinnu og spónavinnu. Það þekktist ekki í Barnaskóla Reykjavíkur. Einnig kenndi Halldóra Vigfúsdóttir börnunum að hnýta innkaupanet, gera snúrur, körfur úr basti o.fl. Fólk virtist taka þessari nýjung vel, börnin voru svo ánægð. Börnin voru líka látin teikna mikið, t.d. löndin, sem þau voru að læra um í landafræðinni. Eyþór Thorarensen fyrrv. apótekari á Akureyri sagði: „Bæði strákar og stelpur voru látin prjóna illeppa, handstúkur og jafnvel vettlinga. Halldóra kenndi sjálf heilsufræði og lét skrifa upp hreinlætisreglur. Hún gekk ríkt eftir, að þeim reglum væri fram- fylgt, hún var kröfuhörð um hreinlæti og alla snyrtimennsku í framkomu og klæðaburði.“ Eyþór sagði Halldóru Bjarnadóttur góða og gagnmerka konu. „A vorin voru sýningar á handavinnu nemenda í sambandi við vorprófm. Þær gáfu góða raun og voru vel sóttar. Andúðin gegn handavinnu hvarf smám saman.“ Arið 1911 átti að efna til stórrar handavinnusýningar í Reykja- vík í tilefni aldarafmælis Jóns Sigurðssonar. Halldóra sagði börn- unum frá þessu og að þau ættu að taka þátt í sýningunni. Þetta þóttu góðar fréttir. Börnin lögðu sig fram um að gera sem besta muni, sýningunni að norðan var vel tekið í Revkjavík. Þá kom Halldóra því nýmæli á, að börnin fengju tannskoðun og kennslu tannlæknis (Friðjóns Jenssonar) í að hirða og bursta tennurnar. Var farið með einn bekk í einu til tannlæknisins. Hann benti á að nota tannkrít og skola munninn rækilega upp úr volgu saltvatni til að styrkja tannholdið. Þessi tannlæknisskoðun var börnunum að kostnaðarlausu. Bæj- arsjóður greiddi tannlækninum þóknun. Þetta var óþekkt hér á landi. Þegar Halldóra kom að skólanum, átti hann ekkert bókasafn, og hana langaði til að fá Islendingasögurnar og 12 Nýja-Testamenti. Guðlaugur sýslumaður og formaður skólanefndar samþykkti það
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.