Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Blaðsíða 65
TIL HALLDÓRU BJARNADÓTTUR
65
Garði, S.-Þinff. 2. ian. 1944
Bréf frá Matthildi Halldórsdóttur
Kæra vinkona mín!
Guð gefi þér gott og farsælt nýbvrjað ár. Eg ætlaði alltaf að skrifa
þér fyrir jólin, en það varð ýmislegt eftir af því, sem ég ætlaði mér
að gera, það var margt, sem taíði og heilsan léleg.
Hún hefur reynst þung í sveitunum þessi inflúensa, margir svo
lengi að ná sér. Ekki erum við Kristjana líkt því jafn góðar, og sama
segja margir. Nú er blessuð tengdamóðir mín horfm, manni finnst
tómlegt. Þó að hún væri orðin mikill vesalingur á líkamanum, þá
var hún alltaf þetta blessaða ljós, sem aldrei kvartaði eða fann að
neinu og virtist alltaf ánægð og glöð. Þegar ég var stundum að
segja við hana, að hún ætti ekki eins gott hjá okkur og hún ætti
skilið, þá sagði hún: „Eg veit ekki, hvurnig ég ætti að eiga betra.“
Þó vissum við, að mörgu var ábótavant, of lítið lesið fvrir hana og
margt fleira. Vísur og heil kvæði haíði hún fyrir mig fram í
andlátið.
Hugsaðu þér, hvað gott er að umgangast svona manneskju, sem
alltaf er glöð og þakklát fyrir allt, sem er gert fyrir hana, eða sumar
manneskjur, sem ómögulegt er að gera til hæfis, hvernig sem revnt
er og þeim líður alltaf illa. Guðný var búin að vera blind í 25 ár.
Hún var jarðsett 14. desember, giftingardaginn okkar hjónanna,
var 14. desember fyrir réttum 30 árum.
Það leit ekki vel út fyrir okkur með undirbúning undir jarðar-
förina, við sárlasnar og gátum litlu við okkur bætt. Við gátum ekki
fengið okkur til að biðja neina, því að alls staðar var lasleiki og
fólksekla, en konurnar drifu að sem sjálfboðaliðar og allt gekk
lljótt og vel, og enginn hafði illt af svo ég viti, hvurki af að hjálpa
okkur eða af því að fara að jarðarförinni, þó lasnir væru.
Við þökkum þér innilega samúðarskeytið. Guðný [jónsdóttirj
mundi þig alltaf og var hrifin af starfi þínu. Þegar ég skilaði kveðju
frá þér til hennar, sagði hún: „Guð blessi hana ævinlega.“ Sú
blessun fylgir þér alltaf. Eg er nýbúin að lesa kvæðin til þín, sem
eru í Degi. Eg er þeim alveg sammála, vil ég svo kveðja þig með
orðum Helga Valtýssonar: Gleðji þig guð og blessi og geymi þig
Halldóra mín. pess óskar
þín vinkona,
Matthildur Halldórsdóttir
Ég þakka þér innilega gamla árið. Maðurinn minn biður kær-
lega að heilsa þér og óskar þér góðs og gleðilegs árs og þakkar þér
það liðna. 5