Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Blaðsíða 60
60
ÚR BRÉFUM
Reykjavík, 7/4 ’39
Frá Theodóru Thoroddsen
Kæra fröken Halldóra!
Jeg þakka yður kærlega nýfengið bréf. Jeg get, því miður, ekki
orðið yður að miklu liði. „Gitterjave“ er hjer ófáanlegr. Það sem jeg
hef saumað af sprangi er allt komið út og suður, en ofurlítið horn,
sem jeg fann í rusli mínu sendi jeg yður, og set í það fáein spor til að
sýna aðferð saumsins.
Efnið sem þjer senduð mjer, sje jeg ekki tök á að nota í sprang.
Slíkt efni fæst hjer, og er mest notað til að hekla í það garni í púða,
eða þá í Stores...
Desjarmýri, Borgarfj.hr. N.-Múl., 27. júlí 1939
Bréffrá Ingunni J. Ingvarsdóttur
Góða fröken Halldóra!
Þakka vinsamlegt tilskrif frá Bergen og góðar og hugulsamar
bendingar viðvíkjandi gúmmíprjónunum.
Þér óskið eftir að fá fréttir af vefnaðarnámskeiði okkar, og vil ég
gjarnan verða við þeim tilmælum.
Eins og yður mun kunnugt, hefir kvenfélagið hér gengist fyrir
vefnaðarnámskeiðum tvo síðastliðna vetur og hefir S.A.K. [Sam-
band austfirska kvenna] styrkt þau og útvegað kennslukonur.
Hvort námskeiðið stóð 2 mánuði.
Tilgangur með námskeiðum þessum var að endurreisa vefnað-
inn hér í sveitinni, sem algerlega var fallinn niður tvo síðustu
áratugina. Kvað svo rammt að því, að fjöldinn af unga fólkinu
hafði ekki svo mikið sem séð vefstól. Námskeiðunum var þó tekið
með mjög mikilli ánægju og áhuga. Urðu umsóknir að þeim meiri
en hægt var að fullnægja einkum því síðara.
Reyndust nemendur að sögn kennslukvenna bæði lagnir og
ástundunarsamir og höfðu ánægju af starfmu, enda samvinna
milli kennara og nemenda hin besta.
Þá voru húsmæður er í hlut áttu ekki síður ánægðar, því að eftir
ástæðum var vefnaðurinn bæði mikill og eigulegur. Voru einkum
ofnar ábreiður yfir rúm og legubekki, gluggatjöld og ýmiss konar
einfaldari vefnaður.