Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 19

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 19
TVENNAR SMÍÐALÝSINGAR 19 Óðni geirinn Gungni, en Þór haddinn, er Sif skyldi hafa, en Frey Skíðblaðni ok sagði skyn á öllum gripunum, at geirrinn nam aldri staðar í lagi, en haddrinn var holdgróinn, þegar er hann kom á höfuð Sif, en Skíðblaðnir hafði byr, þegar er segl kom á loft, hvert er fara skyldi, en mátti vefja saman sem dúk ok hafa í pungi sér, ef þat vildi. Þá bar fram Brokkr sína gripi. Hann gaf Óðni hringinn ok sagði, at ina níundu hverja nótt myndi drjúpa af honum átta hringar jafnhöfgir sem hann. En Frey gaf hann göltinn ok sagði, at hann mátti renna loft ok lög nótt ok dag meira en hverr hestr ok aldri varð svá myrkt af nótt eða í myrkheimum, at eigi væri ærit Ijós, þar er hann fór; svá lýsti af burstinni. Þá gaf hann Þór hamarinn ok sagði, at hann myndi mega ljósta svá stórt sem hann vildi, hvat sem fyrir væri, at eigi myndi hamarrinn bila, ok ef hann yrpi honum til, þá myndi hann aldri missa ok aldri fljúga svá langt, að eigi myndi hann sækja heim hönd, ok ef þat vildi, þá var hann svá lítill, at hafa mátti í serk sér. En þat var lýti á, at forskeftit var heldr skammt. Þat var dómr þeira, at hamarrinn var beztr af öllum gripunum ok mest vörn í fyrir hrímþursum, ok dæmdu þeir, at dvergrinn ætti veðféit." I þessari stórkostlegu lýsingu gripanna er sem Snórri sjái í sjónhendingu margar aldir fram í tímann. Við sjáum í geirnum Gungni og hamrinum Þórs þau ægilegu vopn, er nú ógna allri heimsbyggðinni. I Skíðblaðni kennum við skip þau, er stýra má hvert er fara skal, raunar án þess að nokkurt segl komi á loft, og gölturinn, er renna mátti loft og lög, er fyrirboði flugvéla og geimskipa, sem eru allir vegir færir og af lýsir í náttmyrkrinu svo sem burstinni galtarins. Þá er nú margur gervihaddurinn sem holdgróinn sé. Þótt stórskip nútímans verði ekki vafin saman sem dúkur • og höfð í pússi sér eins og Skíðblaðnir, er margt tækniundrið í ætt við hann, þegar unnt er að koma hinu ótrúlegasta galdraverki fyrir í örlitlum stokki. Ég læt loks öðrum eftir að finna eitthvað, er jafna megi við hringinn Draupni, nefni þó til gamans vélmenni eða róbóta nútíðarinnar. Það er eflaust með ráði gert hjá Snorra að benda á lýti á bezta gripnum, rétt til að minna á, að enginn hlutur er svo alger, að ekki verði um hann bætt. Hamarinn var ekki einungis beztur af öllum gripunum, heldur var og í honum mest vörn fyrir hrímþursum. Við þekkjum þetta sjónarmið enn í dag, og ætlar að reynast erfitt að fá menn til hverfa frá því. Andi Lokasennu lifir æ, en Loki kvað undir lok sennunnar:

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.