Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Side 45

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Side 45
HALLDÓRA BJARNADÓTTIR 45 arar heimili þeirra barna, sem þeir kenndu, ef eitthvað bar útaf, en ekki í eitt einasta skipti til þess að kæra barn eða kvarta yfir því. Seinna var þessu breytt þannig skv. ósk forstöðukonu, að kosnir fulltrúar úr hópi foreldra komu við og við í skólann til að kynna sér kennslu og alla daglega tilhögun. Foreldrafundir voru oft hafðir. Halldóra hafði sjálf efstu deildina á sinni könnu. Hún fór árlega með þessa deild í heimsóknir í verkleg fyrirtæki í bænum, svo sem smíðastofur, brauðgerðarhús, ullarverksmiðju o.s.frv. Einnig fór hún með efstu deild í skíðaferðir, sjálf alvön slíku frá Noregi. Halldóra sagði það sína skólareynslu að lengja ekki skólatíma barna, stytta hann heldur. Líklega væri heppilegt að taka upp sið enskumælandi þjóða að hafa ekki skóla á laugardögum. Söngur var kenndur í Barnaskóla Akureyrar og mikið sungið, og ekki tók langan tíma að nurla saman í orgel fyrir ágóða af sýningum og söngskemmtunum barnanna. En þá kom það fljót- lega í Ijós, að skortur var á sönghæfum ljóðum fyrir minnstu börnin. Þá var að snúa sér til skáldanna og þau voru á staðnum, Páll J. Árdal og séra Jónas Jónasson á Hrafnagili. Þeir brugðust vel við. Nóg var af lögum, og Halldóra safnaði í kverið ljóðum, leikjum, bænum, sálmum o.s.frv. og nefndi kverið Kvæði og leiki. Hún átti vísan útgefanda í Ósló, J.V. Cappelen, og hjá honum var bókin prentuð með nótum. Hún var víða notuð í skólum, og komu þrjár útgáfur afhenni, 1917—1949. Það væri synd að segja, að Halldóru brysti kjark eða úrræði, þegar hún þurfti á því að halda. Sannleikurinn hefur verið sá, að hún hefur gert alla hvumsa í kringum sig með óvæntum hug- myndum og skjótum lausnum og framkvæmdum! Það þola ekki allir! Góð samvinna var alltaf milli kennara og skólanefndar. Hall- dóra segir í Ævisögunni (112), að sagt hefði verið, að Barnaskólinn væri aðalumræðuefnið í samkvæmum á Akureyri. Það var líka mikið skrifað um hann í blöðin, stundum rætnar greinar eins og í Norðurland 3. nóvember 1917, frostaveturinn. „Móðir skóla- barns“ skrifaði, að börnin væru nörruð í skólann, en þegar þangað kæmi, væri tilkynnt, að enginn skóli yrði vegna hríðar og kulda. Þetta væri í samræmi við ýmsar kúnstir, sem væru viðhafðar í stjórn skólans og allir, sem eigi börn í skólanum, vita um og þarf að verða gagngerð breyting á. „Ég enda þessar línur með að krefjast þess, að skólastýran hlutist til um, að börnin verði ekki oftar

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.