Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 46

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 46
46 NANNA ÓLAFSDÓTTIR nörruð í skólann. Ef kennararnir þurfa endilega að fá sér hvíldar- dag upp úr þurru, er þeim eða skólastýru vorkunnarlaust að láta börnin vita um það kvöldinu áður en „hvíldin“ á að fara fram.“ Pá var Halldóru nóg boðið, þegar einn skólanefndarmaður sat hjá við atkvæðagreiðslu, en hún taldi sig hafa skólanefndina að baki sér um að börnin skyldu vera heima í hörðum veðrum. Petta var að fá rýtinginn í bakið. Hún sagði lausu starfi sínu frá vori 1918 eftir tíu ára skólastjórn. Pessari ákvörðun varð ekki þokað, þó að séra- Matthías Jochumsson og borgarafundar samþykktu áskorun á hana að taka aftur uppsögn sína (Ævisagan, 130-131). Gagnfræðaskólanum var lokað nokkrar vikur þennan vetur vegna eldiviðarskorts, og einnig var Barnaskólanum lokað í nokkrar vikur og komið þar upp mötuneyti vegna eldiviðarskorts hjá almenningi. Halldóra varð þess fljótt vör, eftir uppsögninga, að bæjarbúar vildu allt fyrir hana gera og fannst henni notalegt að linna vinsemd fólksins. Hún var kosin í bæjarstjórn og skólanefnd o.fl. Konurnar vildu koma henni á þing, en þangað átti hún ekki erindi að eigin áliti, alltaf á sama máli og síðasti ræðumaður. Pangað ætti Bríet að fara, hún væri alltaf óánægð, eins og við ætti. „Bölvuð nægjusemin,“ sagði Bríet. Halldóra (og móðir hennar) voru næstu íjögur ár á Akureyri og hún „hafði mörg járn í eldinum, þó þau gæfu ekki mikið í aðra hönd“. Hún hafði haft námskeið í handavinnu ýmiskonar o.fl. (þegar frá árinu 1910). Aðsókn var dræm framan af en úr rættist fyrir atbeina nokkurra fjölskyldna. Þessi námskeið voru starfrækt til 1922, 3 mánuði á ári og urðu námsmeyjar um 500 alls og telur Halldóra að þau haft haft varanleg áhrif á hundruðum heimila um Norðurland. Þetta var upphaftð og grundvöllurinn að öllu því starfi sem bæði Halldóra og fjölmargar aðrar konur hafa unnið um land allt. Nokkurs styrks nutu námskeiðin frá bæ og ríki (Ævisagan, 141-142). Aftur til Reykjavíkur Pegar hér var komið, barst Halldóru tilboð norður til Akureyrar um að kenna handavinnu í Kennaraskóla Islands í Reykjavík. Pví boði tók hún fegins hendi, þar mundi hún ná til allra kennara landsins með þá námsgrein sem hún áleit einna þarfasta í barna- skólum. Haustið 1922 héldu þær mæðgur til Reykjavíkur. Þær höfðu f'cngið inni í Þingholtsstræti 28 hjá Hólmfríði Gísladóttur og Ingunni Bergmann. Halldóra var ntjög ánægð með starfið. Sam-

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.