Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 51

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 51
HALLDÓRA BJARNADÓTTIR 51 mín breyttist með aldrinum, og mundi ég nú vera sammála móður minni, „sem áleit, að Halldóra Bjarnadóttir yrði þekkt löngu eftir sinn dag og þá vegna framgöngu sinnar í kynningu á íslensku ullinni. Hvatti konur til að vinna úr íslensku ullinni. Yfirleitt hvetjandi í öllu því, sem íslenskt er, svo sem tóvinnu, notkun íslenska þjóðbúningsins, gamalla siða o.fl. Ráðrík og stjórnsöm. Hiklaus í fyrirskipunum sínum, velti að því er virtist aldrei fyrir sér réttmæti ákvarðana sinna eða því, hvort hún legði of mikið á Sigríði sína eða aðra. Gerði boð fyrir þá, sem hún vildi tala við, bar upp erindi sitt, sló þéttingsfast á öxl viðmælanda -áheyrn lokið- ekkert óþarfa mas. Vildi heldur stuttar heimsóknir, innlit vina, en langar heimsóknir. Þótti vænna um að fá fyrstu íslensku vorblómin, fifla- eða sóleyjavönd, tínd af túni eða úr skurðbakka, vinarhendi, en búðarkeyptar rósir. Var nægjusöm í lifnaðarháttum hversdagslega, en hafði gaman af veislum. Átti jafnvel koníak í náttborði sínu og tók sopa og bauð af stút. Gat átt til að taka sundur appelsínu og bjóða gestum hólfm af diski. Fékk sendan harðfisk og tólg frá kunningja, gekk þá um og bauð öllum á ellideildinni bita af góðgæti þessu. Ræðuhöld voru henni vel að skapi, eigin sem og annarra. Sjálf alltaf tilbúin að halda smáræðu, ef ekki aðrir vildu tala. Sterkbyggð, bæði andlega og líkamlega. Heilsuhraust alla ævi. Notaði lítið af lyfjum. Tapaði heyrn, en átti gott með að lesa, notaði gleraugu. Gerði ekki handavinnu nema með pennanum og ritvélinni. Haíði gaman af að fá bréf, enda lengi iðin við að svara tilskrifum. Ferðaðist mikið og notaði þau farartæki, sem tíðkuðust, bíl og flug. Þegar hún kom heim úr ferðalögum, lá hún mest fyrir í þrjá daga, lét færa sér mat inn á herbergið sitt. Talaði um sjúkrahúsvist sem gott hús eða gott heimili. Studd af herbergi sínu yfir á vaktherbergi sjúkradeildar hafði hún á orði, að gaman væri að koma í „litla kotið“ okkar, hafði þetta fyrir bæjarleið og bað um kaffi. Sat í stól eða lá fyrir og las. Hélt andlegri heilbrigði lengi, varð aldrei leiðinlega rugluð eða elliær. Hrörnaði smámsaman, síðustu árin var hún mest hætt að tjá sig með tali, en bandaði frá sér, brosti og vinkaði í kveðjuskyni. Gott að þjóna henni í ellidómi, sama nægjusemin, en líka stjórnsemin. Reisn án tilgerðar. Heíði orðið (var) góð fyrirsæta, var ævinlega fljót að stilla sér

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.