Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Side 62
62
ÚR BRÉFUM
Garði 16, des. 1939
Bréf frá Matthildi Halldórsdóttur
Kæra góða fröken Halldóra!
Innilega þakka ég þér Hlín, hún er ágæt eins og vant er, og stór-
prýðir hana barnakaflinn, það var þér líkt að hugsa líka um þau.
Fyrir nokkru veiktist ég af miklum hita og höfuðverk og er ekki
orðin jaí'n góð ennþá, má ekkert verða þreytt, hef því mjög lítið
litað við vana. Af því að heilsan er ekki betri en þetta, þá fannst
okkur ekki rétt af okkur að taka við styrk, sem við værum ekki fær
um að sýna í verkinu, að við ættum skilið, þess vegna erum við búin
að taka aftur umsóknina um styrkinn.
Ef heilsan batnar, bvggi ég mér einhvern kofa stutt frá bænum,
því að fólkið aftekur litarlvktina í bænum, orðið svo þreytt á henni,
og svo segir Bergljót, að litargufan (eða damparnir) sé skaðleg
(óholl), hún hafi lesið um það. Ekki er nú stúlka ennþá komin, sem
ég bauð að kenna að lita í haust, hvort sem hún kemur nú seinna í
vetur.
Hér innan í bréfið læt ég peningana fyrir Hlín og bið þig að
fyrirgefa, hvað dregist liefur að senda þá og þakka Hlín. Svo kveð
ég þig sem best og þakka innilega allt gott, sem þú ert búin að gera
fyrir mig, og óska þér gleðilegra jóla og nýárs. Það mælir þín
einlæg vinkona,
Matthildur Halldórsdóttir
Garði, 3. júlí (1940?)
Bréffrá Matthildi Halldórsdóttur
Þakka þér innilega þitt góða bréf og ummælin viðvíkjandi
styrknum. Það er alltaf svo hressandi og gott að fá línur frá þér eða
hitta þig.
Nú er verið að byggja litarhúsið og vona ég að fr. Margrét
kennslukona komi nú í sumar að líta á litun hjá mér.
Nú er Sigfús hreppstjóri rnágur minn búinn að semja upp fyrir
mig litarfyrirsagnirnar, og á þeim er gott og glöggt mál, svo að ég
vona, að takast megi að lita eftir þeim fyrir þann, sem hefur
löngun og þrautseigju. En nauðsynlegt finnst mér að hafa litarsýn-
ishorn fyrir þann, sem ætlar að lita. En með þessu bréfi sendi ég
þær ekki, af því ég veit ekki, hvar á að skrifa þig, og gætu þá máski
þvælst eitthvað, þó að þær kæmist einhverntímann til skila, af því