Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1990, Page 63
TIL HALLDÓRU BJARNADÓTTUR
63
að allir þekkja þig. Nú langar mig að biðja þig, þegar þú hefur
fengið þetta bréf, að skrifa mér og láta mig vita um heimilisfang
þitt (hvar þú hefur aðsetur), svo ég geti sent þér þær sem fyrst.
Ég álít svo langheppilegast að birta þær í Hlín, því með því móti
komast þær á sem flest heimili og geymast best frá glötun.
Við höfum það gott, þó að heilsan mín sé veil, og hrykkju upp af
nokkrar ær í vor, fæst maður ekki um svoleiðis smávegis, þegar
rnaður hugsar um allar þær hörmungar, sem ganga yfir þjóðirnar.
I gær fóru hér um brautina bílar, sem voru að flytja hermenn til
Húsavíkur.
Hvað það væri gaman og gagnlegt að hitta þig.
Slæ ég svo botninn í þessar línur. Oska þér allrar blessunar og að
þú getir haldið áfram að starfa fyrir þjóðina eins og þú hefur gert.
Kveð þig sem best með þakklæti fyrir allt gott fyrr og síðar.
Garði, 9. iúlí 1940
Bréf frá Matthildi Halldórsdóttur
Kæra fröken Halldóra!
Hér sendi ég nú litarfyrirsagnir mínar, sem ég hef verið hvött til
af ýmsum að láta birtast. Ég hef reynt að hafa hverja litarlýsingu
sem ljósasta út af fyrir sig, í svo stuttu máli sem unnt er, nreð því að
taka þó frarn allt það, sem nauðsynlegt væri, til að lýsing á hverri
aðferð gæti skilist og komið að notum. Samkvæmt þessu vil ég óska
þess, að ekkert falli úr eða breytist í prentun á nokkurn hátt.
Ottast, að það myndi þá tapa því gildi, sem því er hugsað.
I öðru lagi legg ég áherslu á, að þcssar fyrirsagnir geti allar fylgst
að. Bæði er náið samband milli þeirra einstöku aðferða, og svo á
þetta heima á einum samastað.
Ég vona, að þú sjáir þér fært að taka þær í Hlín, þá þarf ég ekki
að hugsa meira um það, og eins og ég sagði í bréfi til þín unr
daginn, álít ég best, að þær birtist í henni.
Ég er frískari núna, annars ekkert markvert héðan að frétta.
Kveð þig sem kærast og þakka allt gott fyrr og síðar og óska þér alls
góðs.
Þín einlæg vinkona
Matthildur Halldórsdóttir.
Kær kveðja frá manni mínum [Benedikt BaldvinssyniJ og
tengdamóður [Guðnýju Jónsdóttuij.